Eldri borgarar virkir á vinnumarkaði

Eldri borgarar í Reykjavík. stækka

Eldri borgarar í Reykjavík.

Ríflega helmingur Íslendinga á aldursbilinu 60-65 ára er ennþá á atvinnumarkaði. Einungis einn af hverjum fjórum Eistum og Lettum á sama aldri vinnur ennþá og á meðal Norðmanna er hlutfallið ennþá lægra. Þetta kemur fram í grein Guðrúnar Helgu Sigurðardóttur sem birtist á vef Nordic Labour Journal í gær.

Fram kemur að hlutfall 70-74 ára Íslendinga á vinnumarkaði hafi lækkað nokkuð mikið en sé engu að síður hærra en hjá norrænum frændum þeirra, í Eystrasaltsríkjum og hjá Bretum. Rétt tæplega einn af hverjum fimm Íslendingum vinnur áfram eftir sjötugt.

Í greininni segir að á Íslandi þyki mikilvægt að halda áfram að vinna fram á elliár. Mikil eftirspurn hafi verið eftir vinnuafli fyrir efnahagshrun árið 2008 og eldra fólk hafi átt í litlum vandræðum með að finna sér störf vildi það auka lífsgæði sín með því að vinna sér inn aukatekjur.

Í greininni er ennfremur vitnað til orða Vilhjálms Egilssonar, formanns SA, sem segir að efnahagshrun hafi ekki haft sérstök áhrif á stöðu eldra fólks á vinnumarkaði og eldra fólk hafi ekki misst vinnu í meiri mæli en aðrir aldurshópar. Hann segir jafnframt að samtökin hvetji atvinnurekendur til að halda í starfsmenn sína eins lengi og kostur er, óháð aldri þeirra. Hann telur ennfremur að eldri starfsmenn séu mikils metnir af íslenskum atvinnurekendum.

Jafnframt er haft eftir Jónu Valgerði Kristjánsdóttur, formanni Landssambands eldri borgara, að vinnumarkaður á Íslandi hafi breyst mikið undanfarin ár. Eldri borgurum hafi verið vel tekið og þeir hafi því unnið lengur. Hún telur þó að hugarfarsbreyting hafi átt sér stað og þeim eldri borgurum sem ekki vilji vinna fari fjölgandi. Skattahækkanir hafi komið illa niður á eldri borgurum og því borgi sig ekki lengur að halda vinnu áfram líkt og áður.

Nálgast má grein Guðrúnar hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Fisvél. Myndin er úr myndasafni og tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Fisvél brotlenti við Klaustur

17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni, en þeir slösuðust ekki. Meira »
Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
chuahua til sölu
ég er með tvo chuahua hunda til sölu tík og rakka þeir eru mjög ljúfir og góðir ...
Ónotaðir þakbogar á Honda CRV 2007 til 2012
Er með ónotaða þakboga frá umboðinu fyrir Honda CRV árgerð 2007 til 2012. Fást á...
TILBOÐ TOYOTA LANDCRUSIER 90 VX FLOTT EINTAK 50 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFA
Er með flott eintak af 50 ára afmælisútgáfunni af Toyota Landcrusier 90 VX. Ekin...
Komdu fljúgandi og gistu í Tjaldbót-2012
Eða leigðu 2-4 sæta flugvélar og sumarhús í nágrenni Eyjafallajöluls og Heklu. ...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...