„Engin minnihlutastjórn“
Nýr meirihluti í bæjarstjórn Kópavogs hefur hug á að lækka fasteignagjöld í bænum. Fara á í söluátak á lóðum, en tugir lausra byggingalóða eru óbyggðar. Um 44% þeirra sem kusu í síðustu sveitarstjórnarkosningum standa á bak við nýja meirihlutann.
Í málefnasamningi nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa í bæjarstjórn Kópavogs segir að fasteignagjöld á íbúðum og önnur gjöld verði endurskoðuð með lækkun í huga. „Við eigum eftir að setjast niður og útfæra þær hugmyndir sem fóru okkar á milli við gerð málefnasamningsins,“ segir Ómar Stefánsson varaformaður bæjarráðs og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins.
„Við höfum ákveðnar lausnir í huga, en þær verða að bíða þangað til við erum búin að ná sameiginlegri lendingu.“
Mjög vel rekið sveitarfélag
„Kópavogsbær er mjög vel rekið sveitarfélag og það verður bara að skoða þá möguleika sem eru fyrir hendi,“ svarar Ómar þegar hann er spurður að því hvort jafn skuldsett sveitarfélag og Kópavogur hafi tök á slíkri lækkun.
Hann segir að innan tíðar verði farið í átak á sölu á lóðum í bænum, en þær eru aðallega á Kópavogstúni, Glaðheimasvæði og í Vatnsenda en á síðastnefnda staðnum bíður heilt hverfi í Vatnsendahlíð nýrra íbúa.
„Þetta eru allt lóðir sem við eigum og allt er til sölu,“ segir Ómar. „Þarna eru frábærir skólar, frábær íþróttaaðstaða og við munum byrja fljótlega á nýjum leikskóla í þessum hluta Vatnsendans sem opnar vonandi haustið 2013.“
Engin minnihlutastjórn
Á bak við nýja bæjarstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa standa 44 % þeirra sem kusu í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi 2010. Alls fengu þessir þrír flokkar 6540 atkvæði.
Fyrri bæjarstjórn Samfylkingar, VG, Næst besta flokksins og Lista Kópavogsbúa hlaut 8502 atkvæði í kosningunum og var með tæp 58% atkvæða.
Er þetta minnihlutastjórn? „Við erum með sex bæjarfulltrúa, þannig að þetta er engin minnihlutastjórn,“ segir Ómar.
Bloggað um fréttina
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir Y- listi Kópavogs hefur samstarfið með óheilindum -
Magnús Helgi Björgvinsson Ætli það væri ekki rétt að ræða við íbúana Ómar!
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 11. febrúar 2012, Innlent Enginn flótti af Y-lista
- Laugardagur, 26. febrúar 2011, Innlent Lærðu ekki af Skotum
- Föstudagur, 3. febrúar 2012, Innlent Meirihluti að fæðast í Kópavogi
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Innlent Án meirihluta í þrjár vikur
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Náðu saman um málefnasamning
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































