Gáleysi að fara upp lausan stiga
Á vinnusvæði. Kristinn Ingvarsson
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Sjóvá-Almennar tryggingar hf. af kröfu manns sem taldi sig eiga rétt til bóta úr ábyrgðartryggingu Ístaks. Maðurinn slasaðist við vinnu hjá Ístaki þegar hann datt úr lausum stiga. Dómurinn taldi slysið rakið til gáleysis mannsins.
Tildrög slyssins voru þau að maðurinn, ásamt öðrum, vann að því að hífa gámaeiningar af tengivagni vöruflutningabifreiðar. Hann fór upp stiga til að festa á gáminn þar til gerða hífingarkróka, en stiginn rann undan honum og hann féll niður á pall tengivagnsins.
Samkvæmt matsgerð læknis eru varanlegar afleiðingar mannsins viðvarandi verkir í vinstri mjöðm, læri og hné, auk hreyfiskerðingar. Þá megi gera ráð fyrir ótímabærri þróun slitgigtar í hnélið. Var tímabundin óvinnufærni metin 100% frá slysdegi 7. mars 2008 til 24. mars 2010 og varanlegur miski talinn 25%.
Maðurinn fór fram á rúmar þrjátíu milljónir króna í bætur, og bar við að Ístak hefði vanrækt skyldur sínar samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Örugg áhöld hefðu ekki verið til staðar, stiginn sem hann notaði við verkið hefði verið vanbúinn og vörubifreiðapallur sem hann stóð á háll.
Í niðurstöðu dómsins segir að maðurinn sé lærður húsasmiður sem hafi starfað sem slíkur í um þrjátíu ár, m.a. sem verkstjóri á byggingarsvæðum. Þá hafi hann setið námskeið á vegum Ístaks um öryggismál, m.a. í tengslum við notkun lausra stiga.
Þá hafi verið um að ræða álstiga með grófriffluðu undirlagi sem gerði það að verkum að hann ætti ekki að renna í hálku. Því var ekki fallist á það með manninum að stiginn hefði verið vanbúinn. „Vegna menntunar stefnanda og reynslu hlaut honum að vera ljóst að hætta fylgdi því að klífa lausan stiga, eins og hann gerði í umrætt sinn. Var honum í lófa lagið að tryggja öryggi sitt með því að fá [annan starfsmann] eða ökumann vörubifreiðarinnar til að styðja við stigann, eða festa hann með öðrum hætti. Verður slysið rakið til gáleysis stefnanda og ber að sýkna stefnda af kröfum hans.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 24. maí 2012, Innlent Hæstiréttur sýknar Fylki
- Miðvikudagur, 9. nóvember 2011, Innlent Dæmt til að greiða fullar skaðabætur
- Föstudagur, 16. mars 2012, Innlent Engin hlutlæg ábyrgðarregla
- Mánudagur, 31. október 2011, Innlent Bar ekki ábyrgð á banaslysi
- Þriðjudagur, 5. júlí 2011, Innlent Fær ekki bætur fyrir að hjálpa vinnufélaga
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































