Hvorki fordómar né hatursáróður
„Ég tel mig hvorki vera að brjóta lög, siðareglur né grunnskólalög. Ég var beðinn um að taka mér frí í gær, í dag og á mánudaginn og á að fara á fund með skólayfirvöldum á morgun,“segir Snorri Óskarsson grunnskólakennari á Akureyri, en bloggskrif hans um samkynhneigða hafa vakið hörð viðbrögð.
„Þetta er bara mín bloggsíða og ekkert sérstakt um hana að segja,“ segir Snorri.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ummæli Snorra um samkynhneigða vekja hörð viðbrögð. Hann hefur kennt á Akureyri í tíu ár og segist aldrei hafa fengið viðlíka viðbrögð frá vinnuveitanda sínum eins og nú.
„Mig grunar þó, að það hafi verið undirliggjandi aðgerðir innan skólans. Ég var settur til hliðar í mínu starfi fyrir fjórum árum. Það var engin skýring gefin á því. En skólastjóri hefur alveg leyfi til að skáka fólki til.“
Tengdist það skoðunum þínum? „Já, það gat tengst því. Að það þurfti að setja mig í einangrun.“
Þetta telst ekki vera nútímaskoðun
Snorri segist skilja þá gagnrýni sem beinist að ummælum hans. „Ég skil vel gagnrýni, sérstaklega varðandi samkynhneigð. Ég hef heyrt það lengi að þetta teljist ekki vera nútímaskoðun, sú skoðun sem ég er með. En ég skil ekki þá gagnrýni sem kalla þetta fordóma eða hatursáróður. Það er eitthvað sem ég kannast ekkert við.“
Hann segist hafa skilað greinargerð til Akureyrarbæjar í dag og að hann hafi haft samband við Kennarasambandið vegna málsins til að kanna með réttarstöðu sína. „Ég held þeim upplýstum. Mér finnst vart koma til greina í íslensku nútímaþjóðfélagi að mönnum sé sagt upp og brotnar á þeim stjórnarskrárgreinar sem fjalla um málfrelsi, tjáningar- og trúfrelsi.“
Einhliða umræða
Á bloggsíðu Snorra koma fram býsna afgerandi skoðanir á samkynhneigðum. Gera má ráð fyrir að þorri nemenda hans hafi aðgang að netinu og þar með bloggsíðu hans.
Finnst þér þetta ekki brjóta gegn því að kennarar eigi alltaf að hafa jafnræði í huga þegar þeir ræða um málefni?
„Nei, alls ekki. Alls ekki. Ég held að það sé mjög eðlilegt að börnin fái líka að lesa þetta. En reyndar held ég að það séu frekar unglingar sem lesa þetta. Það eru unglingarnir sem eru farnir að hugsa um þessi mál og pæla í þessu.“
Snorri segir skjóta skökku við að Samtökunum ´78 sé leyft að koma í grunnskóla á sama tíma og trúfélögum sé meinaður aðgangur. „Þessi svokallaða gagnrýna hugsun, sem háskólasamfélagið vill ala upp í, það er ekki tilbúið til að hlusta á hinar hliðarnar. Þetta er orðið svo einhliða.“
Bloggað um fréttina
-
S i g u r ð u r Sigurðarson Þolinmæði og umburðarlyndi -
Sigríður Laufey Einarsdóttir Viðurkenna samkynhneigðir kenndir sínar? -
Sævar Óli Helgason Einsog þessi þarna útí Noregi...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 11. febrúar 2012, Innlent Óttast uppsögn
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Líkir samkynhneigð við bankarán
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Æfir vegna skrifa um samkynhneigð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































