Margir vilja læra íslensku
Mikil aðsókn er í nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands. Hópurinn sem sækir námið hefur breyst mikið á þeim 40 árum sem boðið hefur verið upp á það; áður var það einkum menntafólk í norrænum og germönskum fræðum, en nú er hópurinn talsvert fjölbreyttari.
„Við fáum nemendur af öllu mögulegu tagi, oft er þetta fólk sem er með skínandi menntun heiman frá sér, en þarf að berjast fyrir því að fá hana metna hérna,“ segir Jón Karl Helgason, dósent og formaður námsgreinarinnar.
Hann nefnir sem dæmi menntaða ljósmóður frá Póllandi sem þyrfti að bæta við sig fimm ára háskólanámi til að fá réttindi hér á landi. „Það er algengt að útlendingum sé ýtt í láglaunastörf. Ákveðin tortryggni mætir fólki, en það er reyndar misjafnt eftir því hvaðan það kemur. En íslenskuþekking er alger forsenda þess að geta fótað sig í samfélaginu, íslenska er lykillinn,“ segir Jón Karl.
Meira en tvö hundruð nemendur víðsvegar að úr heiminum stunda á hverju ári nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands. Jón Karl segir að hluti þeirra ílendist hér að loknu námi, aðrir halda aftur utan. Hann segir að í þessum hópi séu margir af fremstu þýðendum íslenskra bókmennta á erlend tungumál. „Þetta verða helstu sendiherrar Íslands og íslenskrar menningar og margir hafa byggt brú á milli Íslands og síns heimalands.“
„Hópurinn hefur breyst mjög mikið. Áður var þetta mestmegnis fólk sem var í námi í germönskum eða norrænum fræðum, en stærri og stærri hluti núna er fólk sem hefur flutt hingað með einhverjum hætti. Eðli námsins hefur breyst samkvæmt þessu.“
Nemendur geta valið á milli tveggja námsleiða; grunnháskólanáms, sem lýkur með BA-prófi og hagnýtrar brautar, sem ekki krefst grunnþekkingar. Nemendur í háskólanáminu þurfa aftur á móti að taka inntökupróf.
„Það er mikil aðsókn og inn á námið komast færri en vilja,“ segir Jón Karl.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 15. júní 2011, Innlent Verðlaunuð fyrir framúrskarandi árangur
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Laugardagur, 19. febrúar 2011, Innlent Háskóladagurinn vel sóttur
- Þriðjudagur, 8. nóvember 2011, Innlent Margir vilja í háskólabrú Keilis
- Mánudagur, 27. júní 2011, Innlent Starfsmaður Veðurstofunnar verðlaunaður
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































