Miklaborg hreinsuð af ásökunum
Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala hefur hreinsað fasteignasöluna Mikluborg af ásökunum um að ranglega hafi verið staðið að verðmati á íbúð við Byggðarenda í Reykjavík. Segir í úrskurðinum að vinna fasteignasölunnar hafi verið í samræmi við góðar venjur í fasteignasölu.
Hjón kærðu fasteignasala og fasteignasöluna Mikluborg til eftirlitsnefndar fasteignasala fyrir ólögmæta háttsemi við verðmat á íbúð þeirra í Reykjavík, og var kæran send inn í lok síðasta mánaðar.
Málavextir voru þeir að hjónin sóttu um svonefnda 110% leið þar sem fasteignin var yfirveðsett. Lánardrottnar voru Drómi hf. og Íslandsbanki, auk Íbúðalánasjóðs á fyrsta veðrétti. Fasteignasalan Stórborg framkvæmdi verðmat á fasteigninni að beiðni Íslandsbanka og var niðurstaðan að verðmætið væri 30 milljónir króna. Tæpum mánuði síðar framkvæmdi Miklaborg verðmat á fasteigninni að beiðni Dróma en niðurstaðan þá var að áætlað markaðsverðmæti væri 37,5 milljónir króna.
Í úrskurði eftirlitsnefndar Félags fasteignasala segir að verðmat Mikluborgar hafi verið unnið af löggiltum fasteignasala og nefndin geri ekki athugasemdir við starfsaðferðir fasteignasölunnar. „Ljóst er að verðmat fasteignar byggist á áætlunum og ekki er unnt að útiloka að tveir fasteignasalar komist að mismunandi niðurstöðu um verðmæti einnar og sömu fasteignar. Kann slíkt að leiða til ágreinings um verð hennar og kann sitt að sýnast hverjum um hvort verðmat sé of hátt eða of lágt.“
Enginn einkasölusamningur við Dróma
Jafnframt kvörtuðu hjónin undan hagsmunatengslum á milli Dróma og Mikluborgar. Á það var bent að Mikluborg hefði allar fasteignir Dróma í einkasölu sem Drómi býður til sölu á almennum markaði.
Eftirlitsnefndin bendir í úrskurði sínum á að aðstæður hér á landi undanfarin ár hafi leitt til þess að bankar, lífeyrissjóðir og aðrar fjármálastofnanir hafi þurft að leysa til sín töluvert mikið af fasteignum. „Aðstæður þessar hafa, eðli málsins samkvæmt, leitt til þess að gríðarleg eignasöfn hafa myndast bæði hjá bönkum og lífeyrissjóðum og verður að telja að afar sérstakar aðstæður séu nú á fasteignamarkaði í kjölfar efnahagslegs hruns á Íslandi.“
Þá er bent á að í ljósi þessa hafi lánastofnanir, eins og t.d. Íbúðalánasjóður, gefið út yfirlýsingar þar sem öllum starfandi fasteignasölum er boðið að annast um milligöngu á sölu fasteigna sem þær hafa leyst til sín. „Í þessu sambandi ber að taka fram að eftirlitsnefndin hefur gengið úr skugga um að fasteignasalan Miklaborg er ekki með einkasölusamning við Dróma hf. um sölu í þeirra eigu.“
Eftirlitsnefndin telur að hjónin hafi ekki sýnt fram á nein þau sjónarmið sem kunni að leiða til þess að draga beri sérstakt hæfi Mikluborgar eða fasteignasala hennar í efa. Því muni eftirlitsnefnd Félags fasteignasala ekki aðhafast meira í málinu.
|
|
Úrskurðurinn |





































