Skipulagsmálum víða áfátt
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé rétt að hús hafi verið rifin í borginni Bakú í Aserbaídsjan vegna byggingar Kristalshallarinnar. Hann segir að nóg sé að fara í miðbæ Reykjavíkur til að finna fólk sem búi í óvissu um nánasta umhverfi sitt og í grennd við hús sem séu látin drabbast niður.
Þetta kemur fram á bloggsíðu Sigmundar.
„Eurovision-höllin (Kristalshöllin) í Bakú var byggð á auðri landfyllingu,“ skrifar Sigmundur. „Það er því ekki verið að rífa nein hús í miðbænum til að rýma til fyrir Eurovisionhöllinni. Hins vegar hafa miklar framkvæmdir verið í Bakú undanfarin ár og stefnt er að því að sem mestu verði lokið fyrir keppnina.“
Hann segir ótal dæmi þess á Vesturlöndum, ekki síður en í Austur Evrópu, að þensla á fasteignamarkaði og óheppileg stefna í skipulagsmálum skapi hættulega hvata sem leiða jafnvel til þess að fólk neyðist til að selja heimili sín til niðurrifs.
Í því sambandi nefnir hann Skuggahverfið.
„Það er t.d. afleitt hvernig farið hefur verið með Skuggahverfið í Reykjavík, fyrst með skipulaginu frá 1983 og svo með gríðarlegum niðurrifs og byggingaráformum uppúr aldamótum sem urðu til þess að íbúar sem gert höfðu upp hús í hverfinu hröktust burt,“ skrifar Sigmundur.
„Enn sér ekki fyrir endann á slíkri óheillaþróun í Skuggahverfinu og víða í miðbæ Reykjavíkur. Víða býr fólk við óvissu um nánasta umhverfi sitt og í grennd við hús sem látin eru drabbast niður og eyðileggjast vegna óskynsamlegrar stefnu í skipulagsmálum.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Innlent Evróvisjón í skugga kúgunar?
- Sunnudagur, 20. maí 2012, Innlent Gengur vel hjá Íslendingum í Bakú
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Innlent Taki ekki þátt í Evróvisjón
- Þriðjudagur, 22. maí 2012, Innlent „Þetta er allt að smella“
- Föstudagur, 25. maí 2012, Innlent Þjófar í gæsluvarðhald
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































