Styðja menntun í Úganda
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa fengið 3,3 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu fyrir menntunar- og uppbyggingastarf sitt í Pader- og Agogo-héruðum í Norður-Úganda.
Styrkurinn verður nýttur til að bæta næringu þeirra barna sem sækja skóla samtakanna á þessu svæði, samkvæmt tilkynningu frá Barnaheillum.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hófu stuðning og þátttöku við uppbyggingu menntunarstarfs í Norður–Úganda í lok árs 2007. Þegar fulltrúar Barnaheilla – Save the Children á Íslandi heimsóttu Pader og Agago-héruð í nóvember 2010, kom í ljós að næringu barna er mjög ábótavant og stór hluti þeirra fær ekkert að borða í skólanum yfir daginn. Það hefur klárlega áhrif á heilsu barnanna, árangur í skóla og áhuga á áframhaldandi skólagöngu.
Því óskuðu Barnaheill – Save the Children á Íslandi eftir styrk frá utanríkisráðuneytinu til að koma á sjálfbæru kerfi, þar sem t.d. væri hægt að rækta matvæli á skólalóðum enda eru ræktunarskilyrði góð. Skólamáltíðir bæta tvímælalaust heilsu barnanna og árangur þeirra í námi og eiga þátt í að minnka brottfall úr skólum, en brottfall stúlkna úr skóla í Norður-Úganda er 83% og 57% hjá drengjum.
Menntunarverkefnið byggist á samþættri nálgun og miðar að því að veita 30 þúsund börnum í Pader- og Agago-héruðum stuðning við að komast í skóla og fá góða menntun í heilbrigðu, verndandi og barnvænu umhverfi. Því er einnig ætlað að styrkja aðgerðir stjórnvalda í samræmi við PRDP (e. Peace Recovery and Development Plan) vegna grunnmenntunar, heilsugæslu og verndar stúlkna og drengja á svæðinu. Þá er verkefnið í samræmi við aðgerðaplan stjórnvalda um gæði menntunar (e. Quality Education Initiative). Frá árinu 2007 hafa Barnaheill – Save the Children á Íslandi lagt um 53 milljónir króna til verkefnisins, þar af hafa 32,5 milljónir komið frá utanríkisráðuneytinu, segir í tilkynningu.
Barnaheill – Save the Children í Úganda hafa starfað í landinu frá 1990 og þekkja því vel til allra aðstæðna. Samtökin vinna náið með stjórnvöldum og heimamönnum. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og öfluga forystu. Barnaheill –Save the Children á Íslandi eru í beinu og milliliðalausu sambandi við samstarfsaðila sína í Norður-Úganda og fá sendar skýrslur um framgang verkefnisins árlega.
Barnaheill - Save the Children á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum Save the Children. Alþjóðasamtökin vinna að réttindum og velferð barna í 120 löndum og hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Eglantyne Jebb, stofnandi Save the Children, er hvatamaður að sáttmálanum og skrifaði fyrsta uppkast hans.





































