112-dagurinn er í dag
112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag, laugardaginn 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það.
Að þessu sinni er áhersla lögð á að hvetja fólk til að hika ekki heldur hringja í 112 ef það telur sig þurfa á aðstoð að halda – til öryggis. Efnt er til dagskrár í Smáralind og hjá viðbragðsaðilum um allt land. 112-dagurinn er haldinn víða um Evrópu á sama tíma en 112 er samræmt neyðarnúmer í löndum Evrópusambandsins.
Starfsemin verður kynnt í Smáralind klukkan 11-17 í dag. Klukkan 14 verður stutt athöfn í göngugötunni þar sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra flytur ávarp, skyndihjálparmaður ársins verður útnefndur, verðlaun í Eldvarnagetrauninni verða afhent og neyðarvörður ársins útnefndur.
Almenningi gefst kostur á að ræða við starfsfólk og sjálfboðaliða í Smáralind í dag, skoða fjölbreyttan tækjakost lögreglu, slökkviliðs, Landhelgisgæslunnar og björgunarsveita og spreyta sig á endurlífgun.
Í Smáralind stendur einnig yfir ljósmyndasýningin Útkall 2011. Á henni er úrval ljósmynda frá verkefnum viðbragðsaðila á síðasta ári.
112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu, en þau eru:112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Isavia, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og samstarfsaðilar um allt land.
Dagskrána í dag má nálgast á vefsíðu Landsbjargar
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 11. febrúar 2012, Innlent Ekki hika – hringdu til öryggis
- Miðvikudagur, 27. júlí 2011, Innlent FÍB með þjónustuvakt um helgina
- Laugardagur, 11. febrúar 2012, Innlent „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Miðvikudagur, 25. apríl 2012, Innlent Stefán Einar: Lokið Kringlunni og Smáralind 1. maí
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































