Hass og árás á leigubílstjóra
Nokkuð erilssamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna lögreglu voru hassreykingar unglinga, akstur gegn rauðu ljósi, afskipti af fjölda gesta á skemmtistöðum og árás á leigubílstjóra.
Ökumaður var staðinn að því að aka gegn rauðu ljósi á Kringlumýrarbraut á tólfta tímanum í gærkvöldi. Í ljós kom að bifreiðin var ótryggð og voru númer tekin af henni.
Lögregla kom að fjórum unglingum í Gvendargeisla um hálfttólfleytið í gærkvöldi, sem virtust vera við kannabisreykingar. Við leit fannst hassblandað tóbak. Málið var afgreitt á vettvangi. Vegna aldurs var haft tal af forráðamönnum sem og barnavernd látin vita.
Rétt eftir miðnætti var tilkynnt um eld í húsi við Lönguhlíð. Lögregla og slökkvilið voru send á staðinn og í ljós kom að um eld í etanolarni var að ræða.
Rétt eftir klukkan eitt sást til þekkts fíkniefnaaðila á veitingahúsi við Laugaveg. Haft var tal af honum og fannst við leit fíkniefni. Málið var afgreitt á vettvangi. Um svipað leyti var bifreið stöðvuð á Eiríksgötu. Ökumaður var grunaður um ölvun við akstur. Hann var færður á næstu lögreglustöð þar sem málið var afgreitt.
Um klukkan hálftvö var bifreið stöðvuð á Menntavegi. Ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og einnig vöknuðu grunsemdir um sölu fíkniefna. Efni fundust við leit og var það mál afgreitt á staðnum. Ökumaðurinn var færður á næstu lögreglustöð.
Rétt eftir klukkan fjögur var tilkynnt um bifreið sem hafi ekið inn í garð við Fagrahjalla og síðan af vettvangi. Hafði bifreiðinni verið ekið utan í skilti og girðingu. Vitað er hvaða bifreið þetta er og hver eigandi er. Bifreiðin fannst við hús eiganda með leifar af vettvangi hangandi utan á henni. Ekki tókst að ná sambandi við eiganda bifreiðarinnar.
Á fimmta tímanum var gerð könnun á starfsmannamálum og fjölda gesta á veitingastað við Bergstaðastræti. Kom í ljós að ýmsu var ábótavant, s.s. merkingu dyravarða og fjölda gesta inni á staðnum. Málið mun verða tekið fyrir í vikunni.
Bifreið var stöðvuð á Brávallagötu rétt fyrir klukkan fimm og ökumaður hennar grunaður um ölvun við akstur. Færður á næstu lögreglustöð og málið afgreitt samkvæmt reglum þar um. Skömmu síðar var karlmaður handtekinn á Laugavegi grunaður um fíkniefnavörslu. Hann heimilaði leit og fundust efni á honum. Málið var afgreitt á vettvangi.
Um hálfsexleytið var bifreið stöðvuð á Miklubraut, ökumaður reyndist réttindalaus og grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Hann var fluttur á næstu lögreglustöð.
Um svipað leyti óskaði leigubifreiðastjóri eftir aðstoð í Steinási. Þar hafði farþegi ráðist á hann eftir að hann reyndi að komast hjá að greiða gjaldið. Þá mun hann og einnig hafa brotið rúðu í anddyri heima hjá sér. Leigubifreiðarstjórinn hyggst kæra hann fyrir líkamsárás sem og fjársvik.





































