Slökkt á meðan Kolaportið er opið
Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins.
Í umsögninni segir að hún sé almenns eðlis og feli ekki í sér efnislega afstöðu Persónuverndar til lögmætis vinnslu. Hún sé því ekki bindandi berist Persónuvernd kvörtun manns sem vaktaður hefur verið af tollstjóra.
Þá segir: „Hvergi er í lögum gert ráð fyrir því að tollstjóri vakti með rafrænum hætti ferðir fólks á almannafæri. Á honum hvílir ekkert það lögboðið hlutverk er geri honum slíka vöktun heimila eða nauðsynlega.“
Þó er tekið fram að tollstjóra geti verið heimilt að hafa myndavélar utan á húsnæði embættisins, en til þess þarf meðal annars að takmarka sjónarhorn eftirlitsmyndavélanna þannig að það beinist að húsinu sjálfu en ekki verði um að ræða vöktun fólks á almannafæri. Er sérstaklega minnst á innganginn að Kolaportinu.
Þá er einnig minnst á skyldu tollstjóra til að gera aðvart um myndavélarnar. „Þegar rafræn vöktun fer fram á vinnustað eða á almannafæri, skal gera glögglega viðvart um vöktunina og hver sé ábyrgðaraðili. Það má gera með því að setja upp merki eða setja vel sýnileg skilti utan á hús embættisins.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 10. október 2011, Innlent Draga úr geymslu sprengiefnis
- Fimmtudagur, 21. júlí 2011, Innlent Mátti ekki skrá kennitölu
- Fimmtudagur, 15. mars 2012, Innlent Vill áframhaldandi viðræður við ESB
- Þriðjudagur, 21. júní 2011, Innlent Tveggja ára fangelsi fyrir brennu
- Föstudagur, 6. janúar 2012, Innlent Gefa framkvæmdir við líknardeild
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































