„Stærstu verðlaunin eru heima“

Gísli Örn Gíslason, skyndhjálparmaður ársins 2011 og dóttir hans, Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir. stækka

Gísli Örn Gíslason, skyndhjálparmaður ársins 2011 og dóttir hans, Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

„Það hjálpaðist allt að á þessum degi. Það var röð tilviljana sem olli því að við vorum öll heima. Við erum búin að vera að rifja þetta upp og það var svo margt ótrúlegt sem gerðist,“ segir Gísli Örn Gíslason, sem í dag var valinn skyndihjálparmaður ársins 2011 af Rauða krossi Íslands. Hann bjargaði lífi 18 ára gamallar dóttur sinnar í fyrra.

Gísli sýndi hárrétt viðbrögð á neyðarstundu þegar dóttir hans, Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir, fór í hjartastopp á heimili þeirra hinn 29. janúar 2011. „Ég var að spjalla við hana, hún sat með tölvuna í fanginu. Allt í einu var eins og það væri slökkt á Sigurbjörgu, höfuðið seig út á vinstri hliðina.“

Hélt að hún væri að grínast

Gísli hélt fyrst að hún væri að grínast en áttaði sig fljótt að ekki var allt með felldu og að hjarta hennar hafði stöðvast. Hann kallaði á eiginkonu sína að hringja í sjúkrabíl, tók dóttur sína niður á gólf og hóf strax endurlífgun.

„Ég var snöggur að leggja hana í gólfið og byrjaði að hnoða. Við hringdum í 112, konan mín hélt símanum upp á eyranu á mér og ég fékk leiðbeiningar þangað til sjúkrabíllinn kom.“

Sjúkraflutningamenn og lögreglumenn komu á staðinn 7-8 mínútum eftir hringt var í 112. Þeir gáfu Sigurbjörgu stuð sem kom hjarta hennar aftur af stað og var hún í kjölfarið flutt á sjúkrahús.

Gísli starfar í álverinu í Straumsvík og hefur farið þar reglulega á skyndihjálparnámskeið.  Hann segist vita fleiri dæmi þess að starfsmenn álversins hafi bjargað mannslífum, þar sem skyndihjálparkunnátta þeirra hefur komið að gagni, og segist vita til þess að einn þeirra hafi bjargað litlu barni.

„Maður veit aldrei í hverju maður getur lent. En þegar eitthvað svona kemur upp á hjálpar það manni svo gríðarlega að kunna eitthvað. Maður heldur miklu fremur ró sinni. Ég átti aldrei von á því að þurfa að nota þessa kunnáttu heima hjá mér, en svo var ég allt í einu þarna með barnið mitt í höndunum.“

Gerði mitt besta

Gísli segist ekki hafa haft ráðrúm til að hugsa um hvort hann væri hræddur eða ekki. „Ég gerði bara mitt besta, þetta er frekar í móðu. En við höfum fengið að heyra símtalið okkar við 112 og þá rifjaðist ýmislegt upp.“

Hann segir Sigurbjörgu hafa verið um þrjá mánuði að ná sér eftir þetta. 

Spurður að því hvaða þýðingu verðlaunin í dag haf svarar Gísli því til að þau séu vel til þess fallin að vekja fólk til umhugsunar. „En stærstu verðlaunin eru hérna heima. Dóttir mín er núna með okkur.“

Gísli tók við viðurkenningu Rauða krossins í göngugötunni í verslunarmiðstöðinni Smáralind kl. 14.00 í dag á hátíðardagskrá Neyðarlínunnar og samstarfsaðila um 112-daginn.

Skyndihjálparmaður valinn í 11. sinn

Þetta er í ellefta sinn sem Rauði krossinn velur skyndihjálparmann ársins. Viðurkenninguna hlýtur sá einstaklingur sem hefur á árinu veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt. Sérstök dómnefnd sker úr um hver hlýtur viðurkenninguna ár hvert en hana skipa fulltrúar frá Rauða krossi Íslands, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Neyðarlínunni, Landspítala háskólasjúkrahúsi, lögreglunni, og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Tilgangur tilnefningarinnar er ekki síst að hvetja aðra til að læra skyndihjálp og vera þar af leiðandi hæfari til að veita aðstoð á vettvangi slysa og áfalla. Í flestum tilfellum þegar beiting skyndihjálpar hefur bjargað lífi fólks gerist það við aðstæður sem eru hluti af daglegu lífi. Oftar en ekki er það einhver nákominn sem þarf á aðstoð að halda.

Fimm aðrir fá viðurkenningar

Fimm aðrir einstaklingar hljóta einnig viðurkenningar hjá deildum Rauða krossins fyrir að hafa beitt skyndihjálp og bjargað lífi á eftirtektarverðan hátt.

Þeir eru Íris Grönfeldt kennari og dóttir hennar Anna Þórhildur Gunnarsdóttir, en Íris endurlífgaði móður sína með aðstoð Önnu Þórhildar eftir að hún lenti í blóðþrýstingsfalli og fór í hjartastopp á heimili sínu í Borgarnesi; Theodór Fannar Eiríksson, sem slökkti eld í móður sinni með teppi og vatni eftir sprengingu í etanólarni á heimili þeirra; Vilhjálmur Vernharðsson, björgunarsveitarmaður og bóndi í Möðrudal á Fjöllum, sem endurlífgaði tékkneska ferðakonu sem fór í hjartastopp á tjaldstæðinu við bæinn; og Þorgrímur Ómar Tavsen stýrimaður sem endurlífgaði skipsfélaga sinn eftir að hann fór í hjartastopp úti á sjó.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »
Fisvél. Myndin er úr myndasafni og tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Fisvél brotlenti við Klaustur

17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SKODA FABIA COMFORT
Skoda Fabia Comfort . Nýskr. 5/2000, ekinn 122 þ.km, bensín,...
EINBÝLISHÚS ÖLFUSI
EINBÝLISHÚS ÖLFUSI Til sölu 170 fm einbýli. Hús 120 ...
Nissan Patrol -TILBOÐ AÐEINS ÞESSA HELGI
NISSAN PATROL 2,8 L. TD ELEGANCE '35 breyttur, árg. 2000 til sölu. Ásett verð 1....
Íbúð til leigu í London
Falleg íbúð til leigu í hjarta Stoke Newington í Austur London. Rúmgott svefnher...
 
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...