Leikstjórinn kom inn sem ljón
Leikarinn Halldór Gylfason var fluttur á slysadeild í gær þegar hann slasaðist við sýningu á Galdrakarlinum í Oz. Lúga opnaðist fyrir mistök á sviðinu þegar Halldór gekk um það og datt hann niður um hana. Tjaldið var snögglega dregið fyrir og varð úr að leikstjóri sýningarinnar kláraði sýninguna.
„Hann var að koma inn í senu þegar lúgan opnaðist. Ég var að fylgjast með sýningunni úti í sal og hann bara hvarf. Ég stóð samstundis upp og hljóp baksviðs,“ segir Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri sýningarinnar, sem var fyrir tilviljun í Borgarleikhúsinu að fylgjast með.
Tilkynnt var um það strax, að töf yrði á sýningunni. Bergur segir að Halldór hafi staðið þegar hann kom að, en kvartað undan eymslum í baki. Því hafi verið tekin sú ákvörðun að kalla eftir sjúkrabíl. Halldór stakk upp á því við Berg að hann kláraði sýninguna. Bergur segist hafa neitað í fyrstu en látið undan og stokkið í ljónabúninginn, en Halldór lék huglausa ljónið, og látið mála sig.
Bergur kom svo upp úr sama gati og Halldór datt niður um, tilkynnti áhorfendum hvað gerst hafði og kláraði sýninguna.
Þó svo að Halldór hafi ekki slasast alvarlega er ekki víst hvort hann getur leikið í næstu sýningu í dag, það kemur í ljós síðar í dag. Ef ekki mun Bergur taka að sér hlutverk ljónsins að nýju.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. janúar 2011, Innlent Um 4.000 vilja fara til Oz
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Innlent Áhorfandi í hjólastól missti af endinum
- Laugardagur, 24. september 2011, Innlent Góð aðsókn að sjávarútvegssýningu
- Laugardagur, 28. apríl 2012, Innlent Fjölmenni á Sauðárkróki
- Þriðjudagur, 25. janúar 2011, Innlent Listamenn nota oft fundna hluti
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































