Blómleg tíð hjá blómabændum
„Þetta er frekar mikill annatími hjá blómabændum,“ segir Sveinn A. Sædal, formaður Sambands garðyrkjubænda, en tveir miklir blómasöludagar eru á næstu grösum; Valentínusardagurinn á morgun og konudagurinn næstkomandi sunnudag.
Hann segir margfalt meira seljast af blómum fyrir konudaginn en Valentínusardaginn og að verið sé að kaupa mismunandi blóm fyrir dagana tvo. Eftirspurn eftir rósum er í hámarki um þessar mundir, bæði hér heima og annars staðar, fyrst og fremst vegna Valentínusardagsins.
Rautt og bleikt fyrir Valentínusardaginn
„Fólk kaupir fyrst og fremst rauð og bleik blóm fyrir Valentínusardaginn, en svo er allur gangur á því hvað keypt er á konudaginn. Það eru bæði karlar og konur sem gefa blóm á Valentínusardaginn. Það er mjög algengt að kaupa eitt blóm; eina rauða eða bleika rós, en aftur á móti eru gjarnan keyptir stórir blómvendir á konudaginn. Karlarnir vilja gjarnan vera djarfir og gefa fallega og stóra blómvendi,“ segir Sveinn.
Hann segir að ólíku sé saman að jafna með bóndadaginn og konudaginn, því að þegar konur kaupi blóm handa mönnum sínum séu þær talsvert hagsýnni í innkaupum og kaupi smáa vendi.
Íslensk blóm um 80%
Að sögn Sveins eru um 80% blóma á íslenskum markaði ræktuð hér á landi og hann segir að blómabændur undirbúi sig fyrir þessa miklu blómasöludaga með því að skipuleggja ræktun sína þannig að það verði kúfur í uppskerunni á þessum tíma.
En er það ekkert slæmt fyrir viðskiptin að þessir tveir dagar skuli vera með svona stuttu millibili? „Nei, ég held ekki, því að fólk er ekki að kaupa eins blóm fyrir þessa daga. Reyndar geta stundum verið allt að tvær vikur á milli konudagsins og Valentínusardagsins. En það hefur reyndar gerst að öll blóm hafa selst upp um þetta leyti,“ segir Sveinn.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Miðvikudagur, 24. ágúst 2011, Innlent Nýr formaður Vestnorræna ráðsins
- Þriðjudagur, 24. apríl 2012, Innlent Áburður undir leyfðum vikmörkum
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Mánudagur, 27. júní 2011, Innlent Starfsmaður Veðurstofunnar verðlaunaður
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































