Neita eða draga að afhenda gögn
Dæmi eru um að fjármálafyrirtæki neiti lántaka um gögn er snúa að uppgjöri eða dragi svo vikum eða mánuðum skiptir að afhenda honum umbeðin gögn. Þetta kemur fram í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn þingmanns Framsóknarflokks.
Þingmaðurinn, Gunnar Bragi Sveinsson, spurði hvort banki eða önnur lánastofnun sem endurreiknað hefur lán, t.d. ólöglegt gengislán, geti neitað að afhenda viðskiptavini gögn sem sýna hvernig útreikningurinn var gerður.
Í svari ráðherra segir, að í lögum um fjármálafyrirtæki sé ekki að finna ákvæði sem mæla með skýrum hætti fyrir um rétt viðskiptamanna fjármálafyrirtækja til að fá aðgang að gögnum er varða viðskipti þeirra við fjármálafyrirtæki. Þó sé það mat Fjármálaeftirlitsins að viðskiptamenn eigi sjálfir rétt á þeim upplýsingum sem þeir geta veitt þriðja aðila.
Þá er vitnað í svar frá umboðsmanni skuldara, en þar kemur fram að gögn sem nauðsynleg eru til að yfirfara aðferð við endurútreikning lána séu upprunalegur lánasamningur og yfirlit yfir greiðslur á viðkomandi láni. Í sumum tilvikum þar sem lán eru að hluta til í íslenskum krónum sé jafnframt nauðsynlegt að fá íslensku vaxtaröðina, þ.e. þá íslensku vexti sem voru á láni hjá lántaka yfir allan lánstímann. Umboðsmaður fer fram á að viðkomandi gögnum sé svarað.
Í svari umboðsmanns kemur jafnframt fram að það komi fyrir að skuldari hafi ekki gögn undir höndum og fjármálafyrirtæki neiti lántaka um gögn er snúa að uppgjöri eða dragi svo vikum eða mánuðum skiptir að afhenda skuldara umbeðin gögn. "Í slíkum tilvikum hefur umboðsmaður kallað eftir slíkum gögnum frá fjármálafyrirtækjum, yfirfarið útreikninga í heild og sent skuldara bréf um þá aðferð sem fjármálafyrirtæki beitir, niðurstöðu útreikninga og gögn í máli viðkomandi." Þá segir að fjármálafyrirtæki bregðist jákvætt við ósk embættisins um afhendingu gagna þrátt fyrir að gjarnan sé litið á fjögurra daga frest frekar sem undantekningu en meginreglu.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. maí 2011, Innlent Sex vilja gera Vaðlaheiðargöng
- Föstudagur, 27. maí 2011, Innlent Gæti numið tveimur milljörðum
- Miðvikudagur, 23. mars 2011, Innlent Óljóst með næstu skref Horns gegn DV
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Þriðjudagur, 17. apríl 2012, Innlent Fjármálafyrirtæki fresti aðgerðum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































