Rangur hattur á ráðuneyti
Þingmaður Framsóknarflokks gerði á Alþingi í dag athugasemdir við orðalag svars utanríkisráðherra við skriflegri fyrirspurn um Evrópustofu. Fór þingmaðurinn fram á að svarið yrði tekið til sérstakrar skoðunar.
Meðal þess sem Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, spurði um, var hvers vegna utanríkisráðuneytið hefði samið við stækkunardeild Evrópusambandsins um að opna hér Evrópustofu.
Svar Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra var tekið til umræðu á Alþing þegar Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, kvaddi sér hljóðs undir liðnum fundarstjórn forseta og undraðist mikið orðalag svarsins. Sagðist hún telja að Össur hefði sjálfur skrifað þetta og vildi að forsætisnefnd tæki málið fyrir.
Svarið er orðrétt á þessa leið:
„Fyrirspurnin byggist á misskilningi sem raunar hefði mátt uppræta með því að leita til Evrópustofu. Rangt er að ráðuneytið hafi samið við einn eða neinn um Evrópustofu. Slíkri ósk var aldrei, formlega eða óformlega, komið á framfæri við Evrópusambandið. Hér er því rangur hattur settur á ráðuneytið, líkt og þegar Jón Hreggviðsson setti upp hatt böðulsins í Galtarholti forðum. Allt frumkvæði að Evrópustofu kom frá Brussel, eins og ýmislegt gott sem eflt hefur hag Íslands.“
Vigdís spurði einnig hvort tilgangurinn með Evrópustofu væri ekki að vinna að aðild að Evrópusambandinu. Össur svaraði því til að þetta væri einnig á misskilningi byggt hjá Vigdísi. Hann vísaði í útboð ESB en þar kemur fram að tilgangurinn sé að aðstoða Evrópusambandið við að auka þekkingu og skilning á Evrópusambandinu á Íslandi og til að varpa ljósi á tengsl Íslands og ESB, samningaferlið sjálft og mögulegar afleiðingar aðildar fyrir Íslendinga.
Þá er spurt um stöðugildi vegna Evrópustofu og segir í svarinu að fimm störf hafi skapast við Evrópustofu, þrjú í fullu starfi og tvö í hlutastarfi. Reksturinn fyrsta árið kosti um 113 milljónir króna.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 27. mars 2012, Innlent Spyr um samskipti RÚV við ESB
- Mánudagur, 2. apríl 2012, Innlent Tómas Ingi Olrich: Summa diplómatískra lasta
- Miðvikudagur, 24. ágúst 2011, Innlent Nýr formaður Vestnorræna ráðsins
- Miðvikudagur, 18. apríl 2012, Innlent Lýsti yfir vantrausti á ráðherra
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Farþegum með Norrænu fækkaði
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































