Friðun of harkaleg aðgerð
Jón Eiríksson í Fagranesi hefur nytjað Drangey í áratugi. Hann hefur farið með fjölda ferðamanna út í eyjuna. Morgunblaðið/Einar Falur
„Að okkar mati er friðun þessara fuglategunda á öllu landinu allt of harkaleg aðgerð, einkum þegar horft er til þess hversu takmarkaðar rannsóknir liggja að baki tillögunni.“
Þetta segir í bréfi sem Drangeyjarfélagið í Skagafirði hefur sent alþingismönnum. Í bréfinu er tillögum starfshóps umhverfisráðuneytisins um algera friðun fimm svartfuglastofna harðlega mótmælt.
Umhverfisráðherra hefur kynnt á vef sínum drög að frumvarpi til breytingar á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum. Þar er gert ráð fyrir að nýting tiltekinna hlunninda sé leyfisbundin. Frumvarpið er liður í að framfylgja tillögum starfshóps ráðuneytisins um að friða tímabundið fimm tegundir sjófugla, þar á meðal lunda.
Í umfjöllun um mál þessi í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að félagar í Drangeyjarfélaginu setja spurningarmerki við forsendur tillagna starfshópsins. „Ég sé ekki að það séu vísindaleg rök á bak við þetta veiðibann. Ég hef ekki hitt nokkurn mann sem telur að stofninum hafi hrakað hér,“ segir Viggó Jónsson, formaður Drangeyjarfélagsins. Hann er í hópi manna sem lengi hafa sigið eftir eggjum í björgum Drangeyjar og háfað lunda. Hann nefnir lundastofninn sem dæmi, segir að varp hafi verið í góðu meðallagi í fyrra. „Maður spyr sig, af hverju á að banna veiðar hér fyrir Norðurlandi, þegar lægð er í stofninum á Suðurlandi,“ segir Viggó. Hann nefnir fleiri eyjar, meðal annars Vigur í Ísafjarðardúpi þar sem lunda hefur verið að fjölga.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 10. febrúar 2012, Innlent Aldagamlar hefðir í hættu
- Þriðjudagur, 3. janúar 2012, Innlent Vilja friða 5 tegundir af svartfugli
- Þriðjudagur, 3. janúar 2012, Innlent Mótmæla algjöru veiðibanni
- Þriðjudagur, 3. janúar 2012, Innlent Bændur vildu semja um friðun
- Fimmtudagur, 12. apríl 2012, Innlent Stytting veiðitíma í skoðun
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































