Styðja ekki „buddupólitík“

Frá bæjarstjórnarfundi í Kópavogi í dag. stækka

Frá bæjarstjórnarfundi í Kópavogi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Kópavogs létu bóka á bæjarstjórnarfundi sem lauk á ellefta tímanum í kvöld, að sýnt væri að nýr meirihluti ætlaði að ráðast í stórfelldan niðurskurð til að mæta skattalækkunum. Minnihlutinn segist ekki styðja „buddupólitík“ nýja meirihlutans.

„Þegar fráfarandi meirihluti Samfylkingar, Vinstri grænna, Næst besta flokksins og lista Kópavogsbúa tók við völdum í Kópavogi í júní 2010 var fjárhagsstaða bæjarins afar slæm og skuldastaða við hættumörk. Meirihlutinn kappkostaði að ná niður skuldum bæjarins og forða bæjarsjóði frá því að fara á forræði eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga.  Gríðarlegur árangur hefur náðst hvað þetta varðar á undanförnum mánuðum.  Þrátt fyrir þetta hafa skattar í Kópavogi staðið í stað frá árinu 2008. Þá tókst að standa vörð um félagsþjónustu, leikskóla, grunnskóla auk þess sem vel tókst til þegar sveitarfélagið tók við málaflokki fatlaðra frá ríkinu.

Það er áhyggjuefni að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og lista Kópavogsbúa ætli nú að grípa til buddupólitíkur og kaupa hylli kjósenda með skattalækkunum með tilheyrandi skuldasöfnun. Þetta er sami meirihluti og jók skuldir bæjarins um 30 milljarða á síðasta kjörtímabili – um milljón á hvern einasta íbúa bæjarins. Lækkun gjalda og skatta í Kópavogi verður að fjármagna með stórfelldum niðurskurði. Í málefnasamningi meirihlutans blasir við að það verði í leik- og grunnskólum bæjarins, félagsmiðstöðvum og menningarstofnunum og er það í takti við tillögur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá því í desember en þá lögðu þeir til um 300 milljóna króna óskilgreindan niðurskurð í skólum bæjarins, um 30 milljónum í félagsmiðstöðvum og forvarnarstarfi og tugum milljóna í menningarstofnunum.

Sú gamla klisja að ætla að úthluta lóðum fyrir öllu bruðlinu stenst enga skoðun nú þegar eftirspurn eftir lóðum er takmörkuð. Lóðir hafa verið seldar frá vorinu 2010 og er von um að sala á lóðum muni taka kipp á næstu misserum. Hagnaður af lóðasölu hefur farið í niðurgreiðslu skulda en svo virðist sem hinn nýi meirihluti undir forystu Ármanns Kr. Ólafssonar muni nota hagnað af lóðasölu í lækkun gjalda, þvert á það sem talaði sig hásan um í stjórnarandstöðu.

Fyrirhuguð stjórnsýsluúttekt er óskilgreind og óljós og engar líkur á að þeir flokkar sem standa að meirihlutanum hafi nokkurn áhuga á að taka út vægast sagt umdeildar ákvarðanir sem teknar voru í tíð þessa sama meirihluta. Gunnar I. Birgisson mun eiga sæti í einni veigamestu nefnd bæjarins, framkvæmdarráði.  Framkvæmdarráð fer með allar framkvæmdir bæjarins, lóðaúthlutanir,  innkaup, samninga við verktaka og útboð.  Jafnframt verður Gunnar I Birgisson fulltrúi Kópavogsbæjar í stjórn Strætó bs.  Það er ljóst að gamli meirihlutinn er komin til valda í boði Lista Kópavogsbúa og þá veitir ekki af öflugu aðhaldi,“ segir í bókun bæjarfulltrúa minnihlutans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »
Fisvél. Myndin er úr myndasafni og tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Fisvél brotlenti við Klaustur

17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Silky Terrier strákar til sölu
Þrem bræðrum er óráðstafað úr þessu goti. Þeir eru heilsufarssk., örmerktir og ...
Negld vetrardekk til sölu
Stærð: 195/65 R15, lítið notuð. Kosta 75 þús. ný, seljast á 40 þús. stgr. Upplýs...
Babaria, snyrtivörur á góðu verði.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem hentar þörfum allra í fjölskyldunni. Þetta er...
2-3 herbergja íbúð óskast í Rvk
2-3 herbergja íbúð óskast fyrir tvær reglusamar og rólegar vinkonur, helst í hve...
 
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...