Tæplega helmingur lands þjóðlendur
Niðurstaðan er sú að 47 prósent landsvæðisins teljast þjóðlendur en 53 prósent eignarland. Morgunblaðið/Rax
Óbyggðanefnd hefur þegar úrskurðað um 70 prósent af landinu öllu og 86 prósent af miðhálendinu. Niðurstaðan er sú að 47 prósent landsvæðisins teljast þjóðlendur en 53 prósent eignarland. Af þeim hluta miðhálendisins sem búið er að úrskurða um eru 89 prósent svæðisins þjóðlendur en 11 prósent teljast eignarland. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um þjóðlendur.
Nánar tiltekið hefur óbyggðanefnd úrskurðað um svæði sem nær frá Suðvesturlandi til Hornafjarðar og frá Norðausturlandi til vestanverðs Norðurlands. Eftir er að úrskurða á Austfjörðum, Norðvesturlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum.
Sigmundur spurði einnig um notkun ríkisins á þjóðlendunum. Í svari ráðherra segir að í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 31. maí sl. um Auðlindasjóð og gjaldtöku fyrir nýtingarrétt var sett á fót nefnd um stefnumörkun ríkisins í auðlindamálum. Nefndinni er ætlað að taka á þáttum sem lúta að ráðstöfun nýtingarréttar sameiginlegra auðlinda og ýmissa réttinda sem ríkið ræður yfir, umsýslu þessara réttinda og meðferð tekna sem hún skapar. Nefndinni var ætlað ljúka störfum 1. desember sl. en vegna umfangs verkefnisins var starfstími hennar framlengdur til 1. júlí 2012.
Auk þessa hefur forsætisráðuneytið sent erindi til Orkustofnunar og óskað eftir samstarfi um kortlagningu þeirrar nýtingar sem á sér stað á köldu vatni, heitu vatni á lághitasvæðum auk nýtingar háhitasvæða í þjóðlendum. Jafnfram var óskað eftir því að stofnunin ynni tillögur að því hvernig best væri að haga verðlagningu fyrir nýtingu þessara auðlinda. Gert er ráð fyrir að vinnu Orkustofnunar verði lokið fyrir 1. maí nk.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































