Boot Camp í Elliðaárdalinn í vor
Margir nýta Elliðaárdalinn til útivistar og er það ein af ástæðum fyrir því að Boot Camp vill færa sig í dalinn. mbl.is/Golli
Ingvar P. Guðbjörnsson - ipg@mbl.isBoot Camp stefnir að því að flytja af Suðurlandsbrautinni í Elliðaárdalinn í vor. Framkvæmdastjórinn segir mikið að gera hjá þeim og að það sárvanti aðstöðu í Elliðaárdal til að mæta þörf þeirra sem nú þegar njóta útivistar í dalnum.
Deiliskipulagstillaga, þar sem gert er ráð fyrir starfseminni, hefur fengið jákvæða afgreiðslu hjá Reykjavíkurborg og er nú í grenndarkynningu sem lýkur í apríl.
„Ef að allt gengur upp þá erum við að hugsa um núna í byrjun maí,“ segir Arnaldur Birgir Konráðsson, framkvæmdastjóri BootCamp ehf. Húsið sem starfssemin flytur í er við Rafstöðvarveg og var í eigu Fornbílaklúbbs Íslands, en klúbburinn seldi húsið í júlí í fyrra.
„Húsið er í kringum 1400 fermetrar með öllu og náttúrulega mikið og flott umhverfi í kring og fyrir okkur með þessa starfsemi er þetta náttúrulega bara draumur líka. Sérstaklega í ljósi þess að þetta er mjög miðsvæðis. Þannig að þetta er bara alveg draumastaðsetning fyrir okkur,“ segir Arnaldur Birgir um aðstæður í dalnum.
Vantar heilsutengda aðstöðu í Elliðaárdal
Þá segir hann að reksturinn gangi vel. „Það er ástæðan fyrir því að við erum að fara. Það gengur ótrúlega vel. Við erum að hefja áttunda starfsárið í haust, þannig að það er komin góð reynsla á þetta. Við erum búin að taka inn crossfit hjá okkur líka og erum að efla okkur og fara yfir í þríþraut í leiðinni. Erum að gera mikið af fínum hlutum og gengur alveg vonum framar.“
Hann segir að með því að flytja í Elliðaárdalinn geti þau gert enn betur og segir að markmiðið sé meðal annars að „mæta þörf þeirra sem eru að fara um dalinn, það er fullt af einstaklingum sem eru að koma þarna til að fara í góða göngu eða hlaupa. Það sárvantar að geta boðið upp á aðstöðu þarna í dalnum fyrir einstaklinga sem eru að koma.“
Aðspurður hvaða möguleikar Elliðaárdalur hafi upp á að bjóða segir hann: „Við ætlum að nýta umhverfið og gera þetta bara vel“ og bætir við: „Ef það er einhver starfsemi sem á að vera þarna þá á hún að vera heilsutengd.“
Boot Camp í Kaupmannahöfn
Boot Camp hófst haustið 2004 í Reykjavík. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið og nú er boðið upp á Boot Camp víða. Fyrir utan Reykjavík er boðið upp á þessa þjálfun á sex stöðum á landsbyggðinni, Akranesi, Reykjanesbæ, Hveragerði, Selfossi, Hellu og Hvolsvelli.
„Þetta eru rétt rúmlega 1.000 manns sem eru hérna í Reykjavík, síðan erum við á landabyggðinni og síðan fórum af stað í Danmörku í september,“ segir Arnaldur Birgir, en tveir Boot Camp-þjálfarar starfa í Kaupmannahöfn. „Það gengur mjög fínt,“ segir hann aðspurður um hvernig gangi á danskri grund og segir að það sé verið að efla þá starfsemi.







































