Dýrara að leggja í nágrannalöndunum

Bílastæðagjald í Reykjavík hefur verið óbreytt síðan árið 2000 eða …
Bílastæðagjald í Reykjavík hefur verið óbreytt síðan árið 2000 eða í rúm 10 ár. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Rannsóknir sem gerðar hafa verið á notkun bílastæða í miðborgum erlendis sýna ótvírætt að bílastæðin eru lengur upptekin ef  gjaldið er lágt. Því er hærra gjaldi beitt til að auka gegnumflæði bifreiða um afmörkuð bílastæði.

„Verðhækkun ætti því að tryggja meira framboð af stæðum í miðborg Reykjavíkur sem er til mikilla hagsbóta fyrir viðskiptavini, kaupmenn og aðra rekstraraðila,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í gær að beina því til borgarráðs að gjald fyrir bílastæði í miðborginni verði hækkað og að gjaldskyldur tími verði lengdur. Samkvæmt tillögum ráðsins hækkar klukkutíma gjald fyrir bílastæði á götum úr 150 krónum í 250 krónur.

Gjaldskyldur tími verður frá kl. 9-18 á virkum dögum og frá kl. 9-16 á laugardögum.  Ráðið leggur til að gjald í bílastæðahúsum verði óbreytt en þar kostar fyrsti klukkutíminn 80 kr. en næstu tímar 50 kr. Staðfesta þarf tillögur ráðsins í borgarráði en áformað er að breytt gjaldtaka hefjist 15. apríl nk.

Reykjavíkurborg segir að í nágrannaborgum á borð við Kaupmannahöfn, Ósló og Helsinki sé margfalt dýrara að leggja bíl  miðborginni og gjaldskyldur tími er lengri. Sem dæmi kostar klukkutími á gjaldsvæði í miðborg Kaupmannahafnar  619 kr., í Ósló 677 kr. og í Helsinki 639 kr.

Bílastæðagjald í Reykjavík hefur verið óbreytt síðan árið 2000 eða í rúm 10 ár. Árið 2000 var klukkutímagjaldið jafnhátt einstöku strætófargjaldi fyrir fullorðinn sem er nú 350 krónur.

Nýting bílastæða á götum á gjaldsvæði 1 í Reykjavík er frá 90-95%. Næg bílastæði eru hins vegar í miðborginni og í næsta nágrenni við hana.  Þá hafa bílastæðahús verið vannýtt en þau eru ódýr og góður kostur. Þar eru 1.140 bílastæði. Hálfur dagur í bílastæðahúsum Bílastæðasjóðs  kostar 230 krónur.  Í Kaupmannahöfn kostar hálfur dagur aftur á móti 2.319 kr. „Bílastæðagjöld í Reykjavík verða því áfram þau ódýrustu miðað við nágrannalönd,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Bílastæðahús í miðborg Reykjavíkur eru við Laugaveg, Vitastíg, Bergstaðastræti, Hverfisgötu og Kalkofnsveg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert