Keflavíkurflugvöllur sá besti í Evrópu

Keflavíkurflugvöllur. stækka

Keflavíkurflugvöllur. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

 Keflavíkurflugvöllur veitti besta þjónustu evrópskra flugvalla með undir 2 milljónum farþega á ári að mati þátttakenda í viðamikilli könnun alþjóðasamtaka flugvalla, Airports Council International. Flugvöllurinn fékk raunar flest heildarstig allra evrópskra flugvalla líkt og árið 2009 en taldist nú í nýjum flokki smærri flugvalla sem ekki koma til álita í fyrsta sæti allra flugvalla. Þetta kemur fram í frétt frá Isavia.

 Þjónustukönnunin er framkvæmd á 186 helstu flugvöllum heims, þar af 54 í Evrópu og svara farþegar spurningum um gæði 36 þjónustuþátta. Niðurstöður eru birtar ársfjórðungslega og heildarárangur árlega. Keflavíkurflugvöllur hefur jafnan verið í efstu sætum evrópskra flugvalla frá því að hann hóf þátttöku í könnuninni árið 2004. Hann var valinn besti flugvöllur Evrópu árið 2009 og var í öðru sæti árið 2010 ásamt því að vera í þriðja sæti á heimsvísu árið 2004 í flokki flugvalla með undir fimm milljónir farþega á ári.

 Keflavíkurflugvöllur skarar jafnan framúr í heildaránægju farþega, kurteisi og hjálpsemi starfsfólks, auðveldu tengiflugi, notalegu andrúmslofti, hreinlæti og biðtíma í öryggisleit. Einnig eru farþegar mjög ánægðir með skjóta afgreiðslu farangurs, aðgengi að farangurskerrum, bankaþjónustu og veitingastaði í flugstöðinni. Möltuflugvöllur var valinn besti evrópski flugvöllurinn  með yfir 2 milljónir farþega en Incheon-flugvöllur í Suður Kóreu bestur á heimsvísu.

 „Við erum stolt af þessum glæsilega árangri sem staðfestir að starfsfólk Keflavíkurflugvallar er fagfólk á heimsmælikvarða. Þjónustukönnun ACI er mikilvægt verkfæri til þess að meta gæði einstakra þjónustuþátta og frammistöðu við að mæta þörfum viðskiptavina. Ég óska öllu starfsfólki á Keflavíkurflugvelli til hamingju með þennan glæsilega árangur“, segir Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia sem annast rekstur Keflavíkurflugvallar í frétt Isavia.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »
Fisvél. Myndin er úr myndasafni og tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Fisvél brotlenti við Klaustur

17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gott hjól á góðu verði
Til sölu Honda VTX1300R árg 2004 Góð dekk og nýlegir bremsuklossar. Akstur 26....
Kawasaki KX 85 árg. 2007 til sölu.
Nýr cylender, nýr stimpill, nýjar legur ì mòtor, ný dekk, ný plöst og ný lìmmið...
SKODA FABIA COMFORT
Skoda Fabia Comfort . Nýskr. 5/2000, ekinn 122 þ.km, bensín,...
Palomino Colt árg 2006
Til sölu vel með farið Palomino colt 9,5 fet, árg 2006. Fortjald fylgir með fr...
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...