Ógnar ekki fjármálastöðugleika

Ljóst er að niðurstaða dómsins mun hafa neikvæð áhrif innan kerfisins, en þó ekki að því marki að það ógni fjármálastöðugleika. Þetta segir í yfirlýsingu frá Fjármálaeftirlitinu um dóm Hæstaréttar í máli sem varðaði endurútreikning á gengistryggðu láni.

„Áhrifin gætu orðið mismikil eftir fjármálafyrirtækjum og í sumum tilvikum gætu þau jafnvel verið óveruleg. Því er á þessari stundu ekki ljóst hver áhrif dómsins verða að lokum. Þá er eiginfjárstaða viðskiptabankanna langt umfram þær kröfur sem Fjármálaeftirlitið gerir.

Fjármálaeftirlitið mun strax hefja vinnu við mat á áhrifum dómsins á fjárhagsstöðu einstakra fjármálafyrirtækja. Mikilvægt er að eyða allri óvissu um fordæmisgildi dómsins og áhrif hans á endurútreikning gengistryggðra lána,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert