Álit frá umboðsmanni
Umboðsmanni alþingis barst í lok desember árið 2010 kvörtun frá fyrirsvarsmönnum söluturns. Kvartað var yfir tveimur úrskurðum dómsmála- og mannréttindaráðuneytis en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lét stöðva starfsemi söluturnsins. Í áliti umboðsmanns kemur m.a. fram að lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu hefði verið unnt að gefa fyrirsvarsmönnum söluturnsins stuttan frest til að tjá sig um þá afstöðu lögreglunnar að stöðva reksturinn.
Í þessu máli reyndi í fyrsta lagi á heimild lögreglu til þess að loka og stöðva atvinnustarfsemi einkaaðila í tilefni af meintum alvarlegum lögbrotum og í öðru lagi reyndi á hversu lengi sú stöðvun geti staðið.
Í áliti sínu beinir umboðsmaður þeim tilmælum til innanríkisráðuneytisins og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að stjórnvöld líti til afstöðu umboðsmanns og hafi hana framvegis til hliðsjónar. Að auki setur hann á framfæri ábendingu við ráðuneytið um hvort tilefni sé til að huga að breytingum á lagareglum um úrræði lögreglu og annarra eftirlitsaðila þegar talið er að alvarleg brotastarfsemi eigi sér stað í skjóli lögmætrar sölustarfsemi.
Þá telur umboðsmaður að það verði að vera verkefni dómstóla að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld hefðu, með því hvernig þau stóðu að stjórnsýslu sinni í málinu, bakað íslenska ríkinu bótaskyldu.
Kvartað yfir tveimur úrskurðum
Kvartað var yfir tveimur úrskurðum. Með fyrri úrskurði var kröfu fyrirsvarsmanna söluturnsins, um frestun ákvörðunar lögreglustjórans um að stöðva starfsemina, hafnað. En með síðari úrskurðinum var staðfest ákvörðun lögreglustjórans um stöðvunina og lagt fyrir hann að gera kæranda grein fyrir því hvort stöðvuninni yrði aflétt eða á hvaða lagagrundvelli mál um varanlega stöðvun starfseminnar yrði rekið.
Að auki laut kvörtun fyrirsvarsmanna söluturnsins að starfsháttum lögreglustjórans þar sem embættið gerði þeim ekki grein fyrir hvort stöðvun á starfseminni yrði aflétt eða á hvaða grundvelli mál um varanlega stöðvun yrði rekið.
Í álitinu segir að eins og atvikum var háttað telur umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemdir við það að lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu hefði á grundvelli lögreglulaga verið heimilt að stöðva sölustarfsemina þegar ákvörðunin var tekin 16. júní 2010. Aftur á móti er tilefni til að gera vissar athugasemdir er snerta framgöngu stjórnvalda í málinu.
Athugasemdir umboðsmanns
Umboðsmaður gerir athugasemdir við þann tíma sem leið frá því að ákvörðun um stöðvun á sölustarfsemi var tekin og þar til henni var aflétt en ákvörðunin var tekin 16. júní 2010 og aflétt 23. júní 2011. Segir m.a. í áliti að á grundvelli reglna um meðalhóf og málshraða yrði að leysa sem fyrst úr því hversu lengi stöðvun atvinnurekstrar ætti að vara og einnig hvort slíkri stöðvun yrði viðhaldið á grundvelli annarra lagaheimilda.
Þá hafði hann einnig í huga að ákvörðunin fól í sér verulega íþyngjandi inngrip í atvinnustarfsemi og að nauðsynlegt hefði verið að koma fram með upplýsingar sem gerðu fyrirsvarsmönnum söluturnsins grein fyrir hversu lengi lögreglan teldi að stöðvunin þyrfti að vara en einnig hvaða skilyrði þyrfti að uppfylla svo fella mætti hana úr gildi.
Metur umboðsmaður það svo að ráðuneytið hefði átt að setja lögreglustjóranum styttri frest en gert var til að afhenda gögn málsins og til að koma að sjónarmiðum sínum vegna kröfu um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.
Þá telur umboðsmaður að sú skylda hafi hvílt á ráðuneytinu að fylgjast með, í formi upplýsingaöflunar, hvort og þá hvernig lögreglustjórinn hefði eða hygðist framfylgja efni fyrirmæla í úrskurði ráðuneytisins um að gera fyrirsvarsmönnum söluturnsins grein fyrir því hvort stöðvun á starfsemi yrði aflétt eða á hvaða grundvelli mál um varanlega stöðvun yrði rekið.
Einnig taldi umboðsmaður fullt tilefni til þess að ráðuneytið beitti almennum yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildum á fyrri stigum málsins.





































