Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar

Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Morgunblaðið/Sigurgeir

Samkvæmt tillögu sem meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis samþykkti í dag er stefnt að því að greidd verði atkvæði um tillögur stjórnlagaráðs samhliða forsetakosningum í sumar. Atkvæðagreiðslan verður ráðgefandi.

Breytingartillagan er við þingsályktunartillögu frá því í haust sem Þór Saari o.fl. lögðu fram. Hún var afgreidd úr nefndinni með stuðningi þingmanna Samfylkingar, VG og Hreyfingarinnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í nefndinni eru andvígir breytingartillögunni.

Stjórnlagaráð afhenti Alþingi frumvarp til stjórnarskipunarlaga 29. júlí í fyrra. Frumvarpinu og skýrslu ráðsins var vísað til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.

Tillaga meirihluta nefndarinnar gerir ráð fyrir að stjórnlagaráð verði kallað saman á ný til sérstaks fjögurra daga fundar í byrjun mars til að fjalla um spurningar og tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að mögulegum breytingum á frumvarpinu sem og um aðra þá þætti í frumvarpinu sem ráðinu þykir þurfa.

Verði það niðurstaða stjórnlagaráðs að tilefni sé til að gera breytingar á áður framkomnum tillögum á ráðið skila breytingartillögum til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, eigi síðar en 12. mars 2012. 

„Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd geri tillögu til Alþingis um að tillögurnar í heild, með  breytingartillögum stjórnlagaráðs, ef við á, ásamt spurningum um helstu álitaefni sem verði bornar upp í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu, sbr. lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Þingsályktunartillaga stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu skal koma til lokaafgreiðslu Alþingis eigi síðar en 29. mars 2012 og verði hún samþykkt skal þjóðaratkvæðagreiðsla samkvæmt tillögunni fara fram 30. júní 2012, samhliða forsetakjöri,“ segir í tillögunni

Gert er ráð fyrir að Alþingi standi fyrir víðtækri kynningu á efni þeirra tillagna sem bornar verða upp í þjóðaratkvæðagreiðslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert