Launin skert um 5,2 milljónir frá hruni

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. stækka

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. mbl.is/Golli

Á tímabilinu 1. janúar 2009 til 30. september 2011 nemur launalækkun forsætisráðherra samtals kr. 5.176.940  á 33 mánuðum. Nær allt tímabilið nam mánaðarleg skerðing kr. 163.209. Þetta kemur fram í frétt á vef forsætisráðuneytisins vegna fréttar í Fréttatímanum í síðustu viku um launahækkun ráðherra og þingmanna, í tilefni ákvörðunar kjararáðs um að fella úr gildi þá launalækkun sem gilt hafði frá því þremur mánuðum eftir bankahrunið haustið 2008.

„Vert er að halda nokkrum staðreyndum til haga í þessu sambandi,“ segir í frétt á vef forsætisráðuneytisins. „Með lagabreytingum í árslok 2008, sem m.a. Jóhanna Sigurðardóttir stóð að, lækkaði kjararáð laun ráðherra og þingmanna um allt að 15 prósent. Þetta þótti eðlilegt og sjálfsagt eins og á stóð eftir bankahrunið, enda tóku allir landsmenn á sig kjaraskerðingu. Í ljósi þróunar á vinnumarkaði og fjárhagsvanda ríkissjóðs vildi ríkisstjórnin taka á sig hluta byrðanna af hruninu enda rétt og skylt að hátt launaðir hópar hjá ríkinu tækju á sig launalækkun líkt og sambærilegir hópar hjá einkafyrirtækjum höfðu gert.“

Þá segir: „Tilmælum var beint til kjararáðs strax í nóvember 2008 um lækkun launanna. Niðurstaðan varð þó að Alþingi samþykkti lagabreytingu að tillögu ríkisstjórnarinnar til að ná fram launalækkuninni og skyldi hún vara til ársloka 2009. Þessi  launalækkun ráðherra og þingmanna var síðar framlengd að tilhlutan ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og var látin ná til fleiri hópa svo sem forstöðumanna ríkisfyrirtækja og ríkisstofnana. Lækkunin var loks afturkölluð 1. október 2011 með nýrri ákvörðun kjararáðs.“  

Þegar allt tímabilið frá 1. janúar 2009 til 30. september 2011 er skoðað nemur launalækkun forsætisráðherra samtals kr. 5.176.940  á 33 mánuðum. Nær allt tímabilið nam mánaðarleg skerðing kr. 163.209.

„Í tvö ár og og fjóra mánuði voru mánaðarlaun forsætisráðherra kr. 935.000 eftir lækkunina sem samþykkt var. Ef lækkunin hefði hins vegar aldrei tekið gildi hefðu mánaðarlaunin verið kr. 1.098.209 allan þann tíma eða frá 1. febrúar 2009 þegar Jóhanna Sigurðardóttir varð forsætisráðherra. Með afnámi lækkunarinnar 1. október síðastliðinn og þeim kjarabreytingum sem orðið hafa í samræmi við aðra kjarasamninga eru laun hennar í reynd liðlega 53 þúsund krónum hærri en þau laun sem hún hefði fengið án lækkunarinnar. Hækkunin nemur því um 5 prósentum frá þeirri upphæð,“ segir í fréttinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »
Fisvél. Myndin er úr myndasafni og tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Fisvél brotlenti við Klaustur

17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bílskúrssala.
Velkomin á bóka-, plötu- og flóamarkað að Melgerði 16, 108 Reykjavík. Opið alla...
Yamaha FJR 1300
Fyrsta flokks og glæsilegt mótorhjól. Yamaha FJR 1300 ár 2007 ekið 4.000 km V...
GLUGGA,HURÐASMÍÐI OG MÓTAUPPSLÁTTUR.
Smíða glugga,hurðir og opnanlegaglugga í gömul og ný hús:Allt unnið úr fyrstaflo...
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur). Ég...
 
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...