Verðtryggð lán verði lækkuð

Kristján Þór Júlíusson alþingismaður.
Kristján Þór Júlíusson alþingismaður. mbl.is/Golli

Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í Silfri Egils í dag að pólitísk samstaða væri að skapast um það að bæta stöðu þeirra sem tóku verðtryggð lán með almennum hætti.

Kristján rifjaði upp samþykkt síðasta landsfundar Sjálfstæðisflokksins um að höfuðstóll verðtryggðra lána yrði lækkaður. Hann sagði að einhverjir hefðu sakað Sjálfstæðisflokkinn um að vera með lýðskrum í þessu máli. Hann sagði að það væri fráleitt. Það hefði verið tekist á um þetta mál á landsfundinum og tekin yfirveguð ákvörðun.

Kristján sagði að eftir nýjasta dóm Hæstaréttar í gengislánamálinu væri orðinn verulegur munur á stöðu þeirra sem tóku gengistryggð lán og þeirra sem tóku verðtryggð lán. Það yrði að koma til móts við þá sem af varfærni tóku verðtryggð lán.

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og skattanefndar, tók undir í þættinum að koma yrði á móts við þá sem tóku verðtryggð lán. Hann minnti á að í greinargerð matsfyrirtækisins Fitch á föstudaginn hefði verið tekið sérstaklega fram að skuldir heimilanna væru enn of miklar og þær yrðu að lækka.

Helgi sagði að menn yrðu hins vegar að gera sér grein fyrir að almennar aðgerðir til hjálpar þeim sem tóku verðtryggð lán kostuðu heilmikla peninga. Þeir sem yrðu að bera kostnað af aðgerðunum væru lífeyrissjóðirnir, fjármálakerfið og skattgreiðendur.

Helgi sagði mikilvægast að hjálpa þeim sem keyptu húsnæði á árunum 2004-2008 þegar fasteignabólan var í hámarki og lánin hækkuðu vegna verðbólgu á árunum 2009-2010. Kristján sagði að aðgerðirnar yrðu að vera almennar og ná til fleiri.

Eygló Harðardóttir, alþingismaður Framsóknarflokksins, sagði í þættinum að allt réttlæti í þessum skuldamálum hefði komið frá Hæstarétti. Hún minnti á að Hæstiréttur hefði dæmt á þann veg að heimilt væri að taka vísitöluna úr sambandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert