Hafna frumvarpi Péturs Blöndal

Ungir sjálfstæðismenn lýsa yfir andstöðu við nýlegt frumvarp Péturs Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um stjórn fiskveiða. Í því er gert ráð fyrir að allar aflaheimildir verði þjóðnýttar og þeim svo endurúthlutað til almennings. Ungir sjálfstæðismenn telja að hugmyndir um þjóðnýtingu eigi ekki heima í flokkum sem vilja kenna sig við hægristefnu og frjálst markaðshagkerfi. Þjóðnýting stenst að sjálfsögðu ekki eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.

 Í ályktun frá SUS segir að þegar aflamarkskerfi var komið á var aflaheimildum úthlutað til þeirra sem höfðu sýnt áræði með því að fjárfesta í greininni. Rúmlega 90% aflaheimilda hafa skipt um eigendur frá þeim tíma.

„Ungir sjálfstæðismenn vilja standa vörð um rétt þeirra sem sýnt hafa áræði til að fjárfesta í aflaheimildum, tækjum og þekkingu og skapað þannig ómældar skatt- og gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið. Séreignarréttur er besta leiðin til að tryggja sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar til framtíðar og til að tryggja að hún skili sem mestum arði til samfélagsins til langs tíma.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert