Krefjast tafarlausra refsiaðgerða vegna makrílveiðanna
Forystumenn í írskum sjávarútvegi vilja að Evrópusambandið grípi nú þegar til refsiaðgerða gegn Íslendingum og Færeyingum í kjölfar þess að ekki náðist samkomulag um makrílkvóta þessa árs í viðræðum fulltrúa sambandsins, Noregs, Íslands og Færeyja í Reykjavík í síðustu viku.
„Við viljum að Evrópusambandið taki af skarið og komi á refsiaðgerðum tafarlaust. Þetta hefur kannski ekki svo mikil áhrif fyrir árið 2012 en við erum að horfa til stöðu stofnsins til lengri tíma,“ er haft eftir Sean O'Donoghue, formanni Samtaka írskra útvegsmanna, á fréttavef Irish Examiner í dag.
Sjávarútvegsráðherra Írlands, Simon Coveney, lýsti yfir vonbrigðum sínum með að viðræðurnar hefðu ekki skilað niðurstöðu. Sagði hann að hvorki Íslendingar né Færeyingar hefðu sýnt neinn sveigjanleika eða raunverulegan vilja til þess að ná samkomulagi á fundinum í Reykjavík.
Coveney sagði að það væri algerlega óréttlætanlegt að Íslendingar og Færeyingar fengju úthlutuð 15% af makrílstofninum líkt og þeir hefðu lagt til. Ennfremur væri ekki ásættanlegt að miða við veiðar úr stofninum á síðasta ári enda væri þar með verið að verðlauna þjóðirnar tvær fyrir óábyrgar og stjórnlausar veiðar sínar.
„Þetta sýnir vel skort þeirra á raunverulegum vilja til þess að finna sanngjarna og réttláta niðurstöðu til þess að stýra veiðum úr stofninum,“ sagði Coveney ennfremur. Hann sagði að á meðan makrílveiðar skiptu Íra miklu máli og hefðu gert í áratugi hefðu Íslendingar enga hefð fyrir slíkum veiðum.
„Það er gjörsamlega óviðunandi að umsóknarríki að Evrópusambandinu skuli hegða sér með þessum hætti, stefna störfum í mikla hættu og lífsafkomu í nágrannaríki í sambandinu,“ sagði Coveney að lokum.
Tengdar fréttir — Umsókn um aðild að ESB
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 24. mars 2012, Innlent Makríldeilan í hnotskurn
- Miðvikudagur, 27. apríl 2011, Innlent Færeyingar ítreka fyrri afstöðu í makríl-deilunni
- Fimmtudagur, 16. febrúar 2012, Innlent Kennir Íslendingum og Færeyingum um niðurstöðuna
- Miðvikudagur, 25. apríl 2012, Innlent Hótar Íslandi refsiaðgerðum
- Fimmtudagur, 26. apríl 2012, Innlent Vilja refsiaðgerðir gegn Íslandi
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri






































