Réttindalaus og barn laust í framsæti

Börn eiga að vera í viðurkenndum öryggisbúnaði í bílum. stækka

Börn eiga að vera í viðurkenndum öryggisbúnaði í bílum.

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni við leikskóla fyrir nýliðna helgi. Í framsæti bílsins var einn fullorðinn farþegi, með lítið barn laust í fanginu. Hefði bíllinn lent í árekstri eða ökumaður þurft að nauðhemla af einhverjum ástæðum hefðu afleiðingar getað orðið mjög alvarlegar fyrir barnið, segir í tilkynningu frá Umferðarstofu.

Eins og flestir vita eiga börn að vera í viðeigandi öryggisbúnaði í bílum sem hæfir þyngd þeirra. Hægt er að finna upplýsingar um það á heimasíðu Umferðarstofu: www.us.is.

Ökumaðurinn reyndist ekki vera með ökuskírteini og við athugun kom í ljós að hann hafði misst ökuréttindi fyrir nokkrum árum, en látið hjá líða að taka próf að nýju til að endurheimta þau. Ökumaðurinn á von á kæru og lögregla sendir almennt skýrslu um slík mál til yfirvalda barnaverndarmála, sem síðan ákveða hvort og þá til hvaða aðgerða sé rétt að grípa.
Í niðurstöðum könnunar á notkun öryggisbúnaðar fyrir börn, sem Umferðarstofa og fleiri hafa gert árum saman víða um land, hafa átt sér stað miklar framfarir í notkun öryggisbúnaðar og til dæmis nutu tæplega 90% þeirra barna, sem ástandið var kannað hjá á Suðurnesjum, í könnun síðastliðið vor fullnægjandi öryggisbúnaðar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lögreglan við eftirlit.

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »
Kirkjugestir voru teknir til altaris.

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

Í gær, 17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Í gær, 16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
Í gær, 15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
Í gær, 14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
Í gær, 13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
Í gær, 14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er um að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
Í gær, 14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

Í gær, 12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Söluvagn / Pulsuvagn til sölu.
Hef til sölu nýlegan söluvagn tilbúinn í rekstur. Fullbúinn til sölu á pulsum og...
Myndlistasýning á Café Mílanó.
Erum með lausa veggi til sýninga. Uppl. á staðnum eða í síma 5888860. Café Mílan...
Hrossaskítur á sumarhúsalóðina
Nóg til, taktu eins og þú vilt. Afar gott að setja nýjan hrossaskít undir ungar ...
FERÐ TIL FJALLA
Ferð til fjalla Bestu fríin eru með allan búnað me...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...