Auka þarf umfang vöktunar
Umhverfisstofnun hefur nýverið lokið yfirferð tillögu iðjuveranna á Grundartanga að vöktunaráætlun iðnaðarsvæðisins fyrir næstu 10 árin.
Niðurstaða Umhverfisstofnunar var að auka við umfang vöktunar í sumum tilfellum. Þetta á m.a. við um að gerð er krafa um að bætt verði við loftgæðamælistöð í vesturenda þynningarsvæðis, teknar verði upp mælingar á PAH í svifryki og í sjávarseti, og að í árlegri skoðun dýralæknis á heilsufari sauðfjár á bæjum í grennd við iðjuverin verði fylgst með heilsufari hrossa.
Stofnunin taldi auk þess að vakta bæri áfram hluta af þeim þáttum sem iðjuverin óskuðu eftir að dregið væri úr eða hætt, s.s. um veðurmælingar og vöktun á efnainnihaldi í heyi. Enn fremur setti Umhverfisstofnun fram kröfu um aðgengi að vöktunaráætlun, endurskoðun hennar, um framsetningu niðurstaðna og um kynningarfundi.
Stofnunin féllst hins vegar á ósk iðjuveranna um að í ákveðnum sértilgreindum tilvikum mætti draga úr vöktun eða sleppa þar sem niðurstöður vöktunarmælinga hingað til hafa ekki sýnt breytingar eða talið að þær gæfu upplýsingar um áhrif af iðjuverunum. Meðal þess var að dregið yrði úr tíðni sýnatöku úr Berjadalsá, Fossá í Eyrarfjalli og Laxá í Leirársveit en ekki hefur mælst marktæk breyting á mæliþáttum í þeim allt frá 1997 sem rekja mætti til iðjuveranna, segir í frétt á vef Umhverfisstofnunar.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 14. júlí 2011, Innlent Aukning í kvíaeldi á þorski
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Innlent Fá starfsleyfi fyrir sjókvíaeldi
- Miðvikudagur, 14. september 2011, Innlent Álvinnsla fær starfsleyfi í Helguvík
- Fimmtudagur, 19. maí 2011, Innlent Gera úttekt á áhrifum flúors á grasbíta
- Miðvikudagur, 31. ágúst 2011, Innlent Aukið veiðiálag hefur fækkað mink
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































