Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
Hilmar Björnsson, dagskrárstjóri Skjás eins og Gylfi Þór Þorsteinsson, framkvæmdastjóri mbl.is mbl.is/Golli
Skjár einn og mbl.is ráðast í verkefnið Hæfileikakeppni Íslands. Keppnin hefst mánudaginn 27. febrúar þegar opnað verður fyrir umsóknir keppenda inni á mbl.is. Keppendur senda upptöku af sér og atriði sínu sem dómarar velja svo úr.
Bestu atriðin verða svo sýnd í fimm undanþáttum á Skjá einum en með úrslitaþætti verða þættirnir alls sex. Sjónvarpsþættirnir, sem framleiddir eru af Saga Film, fara í loftið 30. mars næstkomandi en úrslitaþátturinn verður sýndur í byrjun maí í beinni útsendingu þar sem sigurvegari verður kosinn af þjóðinni með dyggri aðstoð dómnefndar keppninnar. Mikil leynd hvílir yfir því hverjir skipa dómnefnd í þáttunum en formlega verður tilkynnt hverjir það eru á næstu dögum.
Verðlaunaféð er ein milljón króna og fær sigurvegarinn auk þess nafnbótina Hæfileikaríkasti Íslendingurinn.
„Þetta er eitt stærsta verkefnið sem við höfum ráðist í sem sjónvarpsstöð og samstarf okkar við mbl.is, sem er mest lesni vefur landsins, er náttúrlega mikilvægt,“ segir Hilmar Björnsson, dagskrárstjóri Skjás eins. „En nú er boltinn hjá þjóðinni. Það er milljón í verðlaun og ef fólk kann eitthvað fyrir sér, sama hvort það er dans, söngur eða bara hvað sem er, þá er um að gera að senda inn upptöku af sér inn á Mbl.is ... Leitin er hafin,“ segir Hilmar.
„Þetta er ákveðið skref sem við erum að stíga með þessu samstarfi við Skjá einn,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, framkvæmdastjóri mbl.is. „Í raun er þetta í fyrsta sinn sem stærsti netmiðill landsins fer í svo stórt verkefni enda sjáum við ákveðin tækifæri í að auka samstarf þessara tveggja miðla, sjónvarps og nets, sem sífellt hafa verið að nálgast hvor annan á undanförnum árum.“
Samstarfsyfirlýsing Skjás eins og mbl.is var undirrituð í dag af fulltrúum miðlanna sem hafa boðað enn frekara samstarf.
Allar upplýsingar um skráningu verða fáanlegar á mbl.is frá og með næstkomandi föstudegi.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 10. mars 2012, Innlent Fjöldi vill taka þátt
- Föstudagur, 30. mars 2012, Innlent Íslendingar koma á óvart
- Föstudagur, 4. maí 2012, Innlent „Langar í heitan pott“
- Laugardagur, 27. ágúst 2011, Innlent Ríflega 40 milljónir söfnuðust
- Mánudagur, 27. júní 2011, Innlent Starfsmaður Veðurstofunnar verðlaunaður
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































