Norðmenn breyta fæðingarorlofinu
mbl.is/Brynjar Gauti
Norska ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögur um nýtt fyrirkomulag á fæðingarorlofi sem byggist á því að jafna ábyrgð og tækifæri beggja foreldra til að sinna nýfæddu barni. Breytingin minnir nokkuð á það kerfi sem tekið var upp hér á landi árið 2000 en gengur nokkru lengra. Þetta kemur fram á vef Jafnréttisstofu.
Í fyrsta lagi er sérstakt tillit tekið til þess að mæður þurfi hvíld frá vinnu fyrir fæðingu og fá þær þriggja vikna orlof á launum fyrir fæðingu barns sem ekki skerðir orlofið sem hefst eftir fæðingu barnsins. Síðan fær móðirin 12 vikur, faðirinn 12 og síðan er sameiginlegt orlof í 20 vikur ef tekin er full greiðsla eða samtals 44 vikur.
Einnig er hægt að taka 80% greiðslu og þá verður sameiginlega orlofið lengra eða 30 vikur, eða 54 vikur. Hér á landi er orlofið að jafnaði 3 + 3 + 3 mánuðir og taki verðandi móðir sér leyfi fyrir fæðingu skerðir það fæðingarorlofið. Því er mjög algengt að verðandi mæður fari í veikindaleyfi, segir á vef Jafnréttisstofu. „Þegar hafist verður handa við að bæta kerfið að nýju eftir niðurskurð undanfarinna ára er þetta eitt þeirra atriða sem þarf að skoða, þ.e. að viðurkenna þá sérstöðu að konur fæða börn og þurfa hvíld bæði á undan og eftir,“ segir á vef Jafnréttisstofu.
Norðmenn fara fram úr Íslendingum
„Verði þessar tillögur að veruleika sigla Norðmenn fram úr okkur í stuðningi við foreldra og verður fróðlegt að sjá hvernig þeim verður tekið. Umræðan í Noregi að undanförnu hefur annars vegar gengið út á það að ekki megi auka orlof feðra á kostnað mæðra og hins vegar að ríkisvaldið eigi ekki að skipta sér af því hvernig foreldrar skipuleggja uppeldi og umönnun barna sinna með lagasetningu. Í raun þýðir þetta síðara, rök sem hafa verið áberandi hjá ýmsum trúarsöfnuðum, að það eigi ekki að hvetja feður til aukinnar þátttöku í uppeldi barna og heimilisstöfum, heldur beri að styrkja hina „hefðbundnu“ fjölskyldu þar sem það er hlutverk móðurinnar að annast börn og bú,“ segir í frétt Jafnréttisstofu.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 15. febrúar 2012, Innlent Óheillaþróun í fæðingarorlofi
- Fimmtudagur, 6. október 2011, Innlent Sjálfvirk skráning í trúfélög afnumin
- Mánudagur, 23. janúar 2012, Innlent Vilja afnema húsmæðraorlof
- Fimmtudagur, 3. mars 2011, Innlent Jafnréttisstofa segir að fækkun í stjórnun bitni á konum
- Þriðjudagur, 18. október 2011, Innlent Orðlaus yfir stuðningi víða að
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































