Notaði munnhörpu sem hnúajárn
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir karlmanni sem grunaður er um tilraun til manndráps. Ástæðan var sú að farið var fram á varðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna en ekki almannahagsmuna.
Héraðsdómur Norðurlands eystra féllst á að maðurinn yrði í gæsluvarðhaldi til 27. febrúar nk. og að hann skyldi sæta einangrun meðan á varðhaldinu stæði.
Um er að ræða mál sem kom upp á Þórshöfn 11. febrúar sl. en maðurinn, sem er rétt yfir tvítugt, braust inn til manns sem fæddur er árið 1941 og veittist að honum. Meðal annars notaði hann munnhörpu sem hnúajárn. Lögregla sagði að um væri að ræða uppgjör áratugagamals máls.
Fórnarlambið hlaut heilablæðingu og mar eða bjúg á heila, en að auki hafi það kinnbeins-, nef- og rifbrotnað og hlotið fjölmarga aðra áverka.
Manninum var sleppt eftir skýrslutöku en í greinargerð sýslumanns segir, að í framhaldi af því hafi alvara málsins komið betur í ljós. Þá segir að þó svo nokkuð sé um liðið frá árásinni sé hún á frumstigi. Þá kemur fram að maðurinn hafi 15. febrúar verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir líkamsárás.
Í dómi Hæstaréttar segir hins vegar að rannsóknin sé langt á veg komin, og því séu ekki lagaskilyrði um rannsóknarhagsmuni uppfyllt í málinu. Því var úrskurðurinn felldur úr gildi og er því maðurinn að nýju laus úr varðhaldi.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 20. febrúar 2012, Innlent Árásarmaður áfram í haldi
- Föstudagur, 25. febrúar 2011, Innlent Gæsluvarðhald vegna þjófnaða staðfest
- Þriðjudagur, 28. júní 2011, Innlent Gæsluvarðhald staðfest
- Mánudagur, 4. júlí 2011, Innlent Laus úr gæsluvarðhaldi
- Fimmtudagur, 24. maí 2012, Innlent Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































