Slysavarnaskólinn fékk björgunarbúninga
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, afhenti í gær Slysavarnaskóla sjómanna 10 björgunarbúninga til að nota við kennslu í sjóbjörgun. Er það liður í forvarnasamstarfi sem hófst haustið 2009 og felur meðal annars í sér að VÍS færir skólanum árlega tug björgunarbúninga enda engin vanþörf á þar sem skólinn þarf að endurnýja hátt á þriðja tug björgunarbúninga á ári vegna mikillar notkunar á þeim á æfingum skólans.
Markmið forvarnasamstarfsins er að efla öryggismenningu um borð í fiskiskipum og gera störf sjómanna þannig öruggari en þau eru í dag. Helstu leiðarljósin í forvarnasamstarfinu eru virk skráning allra atvika þar sem slys verða en líka þegar verður „næstum því slys“. Allt er skráð og gert áhættumat á öllum störfum um borð. Þannig er hægt að greina tíðni, staðsetningu og orsakir slysanna til að stuðla að bættum forvörnum og koma í veg fyrir slys á meðal sjómanna, segir í frétt frá VÍS.
Samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndar sjóslysa árið 2011 var á því ári tilkynnt um 251 slys á sjómönnum til Sjúkratrygginga Íslands sem er um 10% fækkun á skráðum slysum milli ára. Ekkert banaslys varð í fyrra. Einungis 69 þessara slysa voru tilkynnt til Rannsóknarnefndar sjóslysa. Að meðaltali hefur verið tilkynnt um 321 slys á sjómönnum á ári til Sjúkratrygginga Íslands undanfarinn áratug. Eitt meginmarkmið samstarfs VÍS og Slysavarnaskóla sjómanna er að efla skráningu og tilkynningar slysa um borð í fiskiskipum, enda er það forsenda úrbóta og fyrirbyggjandi aðgerða.
„Öll þjálfun sjómanna er mikilvæg og nauðsynlegt að sjómenn beiti forvörnum á sínum vinnustað til að koma í veg fyrir slys og óhöpp. Liðsinni tryggingafélagsins er mikilvægur stuðningur við starfsemi skólans og þáttur í baráttunni gegn slysum á sjó,“ sagði Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, við móttöku nýju björgunarbúninganna.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. september 2011, Innlent Fossinn, Roðlaus og Beinlaus teknir í notkun
- Mánudagur, 12. desember 2011, Innlent 3000 í slysavarnaskóla
- Mánudagur, 6. júní 2011, Innlent Með öryggið á oddinum
- Föstudagur, 23. mars 2012, Innlent Sigmaður Gæslunnar fékk straum
- Sunnudagur, 1. janúar 2012, Innlent Engin banaslys á sjó 2011
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































