„Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
Pawel Bartoszek, fulltrúi í stjórnlagaráði, segist hafa takmarkaðan áhuga á að veita Alþingi frekari ráð við breytingar á stjórnarskrá. Hann segir vinnubrögð þingsins við meðferð tillagna stjórnlagaráðsins forkastanleg.
Í pistli á Deiglunni skrifar Pawel að síðari umræða um meðferð á tillögum stjórnlagaráðs, sem fram fór í gær, hafi ekki verið þingsins besta stund. „Í raun er öll meðferð Alþingis á tillögum ráðsins þinginu til vansa og skipulag þess leiðangurs sem framundan er með þeim hætti að jafnvel þolinmóðustu farþegarnir geta ekki annað en stigið frá borði. Því miður.“
Svo skrifar Pawel: „Og hvaða tillögur liggja á þessari stundu fyrir af hálfu þingsins varðandi breytingar á frumvarpi stjórnlagaráðs? Engar. Ekki ein einasta. Kannski koma einhverjar fyrir helgi, segja menn. Kannski eftir helgi. Kannski fær ráðið einhverjar spurningar frá einni þingnefnd. Kannski. En mér sýnist í fljótu bragði að á því hálfu ári sem þingið hefur haft tillögurnar til umræðu hafi ekki farið fram neinar raunverulegar efnislegar umræður um inntak þeirra sjálfra. Né heldur hefur þingið farið í þá vinnu að rýna tillögurnar af einhverri alvöru, ýmist til að finna hugsanlega ágalla eða styrkja grundvöll þeirra stjórnarskrárbreytinga sem lagðar hafa verið fram. Þetta eru forkastanleg vinnubrögð.“
Um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu skrifar Pawel: „Staðan er því þessi: eftir fjóra mánuði verður kosið um einn hlut sem ekki er búið að skoða og nokkra aðra hluti sem ekki er búið að ákveða. Um niðurstöðuna verður rifist. Hvað ef 51% samþykkir tillögurnar? Er mönnum þá stætt á að breyta þeim? Hvað ef 51% fellir? Ætla menn þá að taka því eða reyna að lappa upp á tillögurnar? Hvernig verður farið með úrslit undirspurninganna? Ég hef hvergi séð að þetta væri skýrt. Nefndarálit með tillögunni ber vonir um að „niðurstöður slíkrar atkvæðagreiðslu nýtist Alþingi vel við áframhaldandi meðferð málsins“. Hljómar nákvæmlega þannig að stjórnmálamenn eigi að lesa í „leiðsögn almennings“ eftir eigin geðþótta. Það er ekki góð hugmynd.“
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson Stjórnlagaráð ESB-sinna kallað saman ! -
Kristinn Karl Brynjarsson Poppúlismi og drengskaparheit. -
Sindri Karl Sigurðsson Stjórnarskráin og lýðræðið -
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Miðvikudagur, 22. febrúar 2012, Innlent Þingið brást stjórnlagaráði
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Föstudagur, 2. mars 2012, Innlent 22 fulltrúar af 25 þegar boðað þátttöku
- Mánudagur, 29. ágúst 2011, Innlent Tillögurnar kynntar þinginu
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri





































