Vilja úttekt á stöðu verslunar í miðborginni
Sjálfstæðismenn ætla að leggja fram tillögu í borgarráði á morgun þess efnis að Reykjavíkurborg taki upp samstarf við Miðborgina okkar um að gerð verði árleg könnun á nýtingu húsnæðis á Laugaveginum og á þróunarsvæði miðborgar.
Fram kemur að slík árleg úttekt hafi áður verið gerð af Þróunaráætlun miðborgar, forvera Miðborgarinnar okkar, og hafi gefið mjög góðar upplýsingar um ástand verslunar á svæðinu. Engar upplýsingar liggja hins vegar fyrir í dag um ástandið og því sé borgarfulltrúum ókunnugt um það hvort verslanir séu að vaxa og dafna á svæðinu eða ekki.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna, segir að það sé áhyggjuefni ef rekstraraðilar og kaupmenn sjái ekki ástæðu til þess að vera með rekstur við Laugaveginn og í miðborginni. Nauðsynlegt sé að gera úttekt á stöðu þeirra mála og með öllu óviðunandi að ákvarðanir í þeim efnum, til að mynda um gríðarlega hækkun á stöðumælagjöldum, séu byggðar á tilfinningum eða einhvers konar eðlisávísun.
„Við vitum það að í húsnæði víða á Laugaveginum hafa komið inn verslanir sem hafa staldrað stutt við og það er náttúrulega líka áhyggjuefni ef það reynist síðan erfitt að halda slíkum rekstri gangandi að kaupmenn leiti annað eða hætti rekstri. Það gæti bent til þess að þetta sé ekki eins blómleg verslunargata eins og við viljum og vonum að hún sé,“ segir hann
Júlíus segir nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því að ef engin verslun væri á Laugaveginum og í miðborginni þá væri ekki það mannlíf til staðar sem fólk vildi sjá. „Þá verður ekki þessi menning, líf og verslun sem auðvitað á að vera í miðborginni.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 18. febrúar 2012, Innlent „67% hækkun út úr kortinu“
- Þriðjudagur, 20. desember 2011, Innlent Gott hljóð í kaupmönnum
- Mánudagur, 14. febrúar 2011, Innlent „Samstarfsverkefni okkar allra“
- Föstudagur, 20. maí 2011, Innlent Hluti Laugavegar verður göngugata
- Mánudagur, 18. júlí 2011, Innlent Fleiri ganga Laugaveginn í júlí en júní
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































