Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði ríkissaksóknara um að tilgreina beri ástæður þess að óskað sé eftir gögnum í máli sem er lokið, eigi sér ekki stoð í lögum. Er þeim tilmælum beint til embættisins að það endurskoði ákvæði þess efnis.
Málið kom þannig til, að kona kvartaði yfir synjun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á að veita henni aðgang að gögnum mála sem vörðuðu hana. Í svari lögreglustjórans til konunnar sagði, að gögn eða afrit af gögnum, svo sem lögregluskýrslum eða dagbókarfærslum, yrðu ekki afhent nema tilgreindar væru ástæður þess að óskað væri aðgangs að gögnunum og í hvaða skyni fyrirhugað væri að nota þau.
Umboðsmaður óskaði eftir að embættið gerði grein fyrir því á hvaða lagagrundvelli svarið væri byggt og fékkst það svar, að málsmeðferðin grundvallaðist einkum á reglum ríkissaksóknara um aðgang að gögnum opinberra mála sem lokið er.
Í áliti umboðsmanns segir að samkvæmt upphafsmálslið 1. mgr. 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eigi aðili máls rétt á því að kynna sér skjöl og önnur gögn er varða tiltekið mál hjá stjórnvaldi. Lögreglunni beri eins og öðrum stjórnvöldum ríkis og sveitarfélaga að fylgja þessu ákvæði nema undantekningar séu gerðar frá því í lögum.
Því reyndi á það í málinu hvort ríkissaksóknari hafi haft næga lagaheimild til að mæla fyrir um það í fyrirmælum sínum að viðkomandi þurfi að tilgreina ástæður þess að óskað sé aðgangs að tilteknum gögnum í máli sem lokið er og í hvaða skyni fyrirhugað sé að nota þau.
Niðurstaða umboðsmanns er sú, að skilyrði það í fyrirmælum ríkissaksóknara, að viðkomandi tilgreini ástæður þess að óskað sé aðgangs að gögnum í máli sem lokið er og í því hvaða skyni fyrirhugað sé að nota þau, eigi sér ekki stoð í lögum.
Af því leiði að afgreiðsla lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, á erindi konunnar, hafi ekki verið í samræmi við lög.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. september 2011, Innlent Barnavernd Reykjavíkur braut reglur
- Mánudagur, 26. september 2011, Innlent Ekki ráðið á réttum forsendum
- Föstudagur, 2. desember 2011, Innlent Ákvörðun bótanefndar ekki í samræmi við lög
- Þriðjudagur, 16. ágúst 2011, Innlent Umboðsmaður kannar útreikninga
- Föstudagur, 16. mars 2012, Innlent Fer fram á opinbera rannsókn
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































