Allt að 25% verðmunur á hæsta og lægsta verði í yfir helmingi tilvika

stækka

mbl.is/Hjörtur

Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í þremur lágverðverslunum og fjórum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu og Ísafirði mánudaginn 20. febrúar. Verslanirnar Kostur og Víðir neituðu að taka þátt í könnuninni. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Samkaupum-Úrvali eða í um helmingi tilvika. Í yfir helmingi tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði allt að 25% og í þriðjungi tilvika var 25-50% verðmunur.

Flestar vörurnar sem skoðaðar voru í könnuninni voru til hjá Hagkaupum eða 104 af 110, næstflestar hjá Fjarðarkaupum eða 101, Nóatún og Samkaup Úrval áttu til 94. Fæstar vörurnar í könnuninni voru fáanlegar í Bónus eða 81, Nettó átti 85 og Krónan 92.

Af þeim 110 vörutegundum sem skoðaðar voru var Samkaup-Úrval með hæsta verðið í 58 tilvikum, Hagkaup í 31, Fjarðarkaup 21 og Nóatúni í 20. Bónus var með lægsta verðið á 63 vörutegundum af þeim 110 sem skoðaðar voru. Krónan var lægst í 29 tilvikum og Fjarðarkaup í 15. Þegar umbeðin vara var bæði til í Bónus og Krónunni var um eða undir 2 kr. verðmunur í næstum helmingi tilfella.

Minnstur verðmunur á mjólkurvörum

Af þeim 22 mjólkurvörum, osti og viðbiti sem skoðaðar voru var verðmunurinn undir 25% í 17 tilvikum. Minnstur verðmunur var á léttmjólk, sem var ódýrust á 109 kr./l hjá Bónus, Krónunni og Fjarðarkaupum en dýrust var hún á 110 kr./l hjá Nettó, Nóatúni, Hagkaupum og Samkaupum-Úrvali. Verðmunurinn er 1 kr. eða 1%. Mestur verðmunur var á 10 eggjum frá Brúneggjum, sem voru dýrust á 768 kr. hjá Fjarðarkaupum en ódýrust hjá Krónunni á 580 kr. Verðmunurinn er 188 kr. eða 32%.

Meiri verðmunur var á öllum öðrum vöruflokkum í könnuninni. Sem dæmi má nefna ávexti og grænmeti en verðmunurinn var í helmingi tilvika milli 50 og 75%. Mestur verðmunur var á spínati í poka sem var ódýrast á 1.630 kr./kg hjá Krónunni en dýrast á 2.850 kr./kg hjá Nettó. Verðmunurinn er 1.220 kr./kg eða 75%. Einnig var 75% verðmunur á rófum sem voru ódýrastar á 199 kr./kg hjá Krónunni en dýrastar á 349 kr./kg hjá Samkaupum-Úrvali. Minnstur verðmunur var á gulri melónu sem var dýrust á 399 kr./kg hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrust á 295 kr./kg hjá Bónus sem gerir 35% verðmun.

Af öðrum vörum í könnuninni má nefna að mestur verðmunur var á triple action-tannkremi frá Colgate sem var dýrast á 5.427 kr./l hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrast á 2.450 kr./l hjá Bónus. Verðmunurinn er 2.977 kr. eða 122%. Ein 737 g dós af Swiss miss með sykurpúðum var dýrust á 688 kr. hjá Fjarðarkaupum en ódýrust á 543 kr. hjá Bónus sem er 27% verðmunur. Mömmu-hindberjasaft var ódýrust á 798 kr. hjá Nóatúni en dýrust á 849 kr. hjá Hagkaupum og Samkaupum-Úrvali sem er 6% verðmunur. Barnamatur frá Gerber, „eplamauk“, var ódýrast á 149 kr./st. hjá Fjarðarkaupum en dýrast á 189 kr./st. hjá Samkaupum-Úrvali sem er 27% verðmunur. Frosinn lambahryggur var ódýrastur á 1.498 kr./kg hjá Hagkaupum en dýrastur á 1.898 kr./kg hjá Nóatúni og Krónunni sem er 27% verðmunur. Heimilisbrauð frá Myllunni var ódýrast á 298 kr./st. hjá Fjarðarkaupum en dýrast á 334 kr./st. hjá Hagkaupum og Samkaupum-Úrvali sem er 12% verðmunur.

Í könnuninni var skráð hilluverð vöru eða það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð. Til að auðvelda verðsamanburð er skráð mælieiningaverð vöru, þar sem pakkastærðir eru mismunandi eftir verslunum.

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Ísafirði, Krónunni Árbæ, Nettó Mjódd, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Nóatúni Hringbraut, Samkaupum-Úrvali Hafnarfirði og Hagkaupum Holtagörðum.

Verslunin Kostur og verslunin Víðir neituðu þátttöku

Kostur Dalvegi og Víðir heimiluðu ekki verðlagseftirlitinu að taka niður verð í verslunum sínum.

Aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila, segir í tilkynningu frá ASÍ.

 

 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2010 TOYOTA LANDCRUSIER GX
Toyota Landcrusier 150 GX. Sjsk. Diesel, Ekinn 36.000. 2010 árgerð. Fallegur o...
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
Íbúð óskast sem næst Lyngby - Kaupmannahöfn
Erum ungt bar með lítið barn og bráðvantar íbúð til leigu. Erum að fara í DTU sk...
Óska eftir Dell 2950 þjóni ódýrt
Óska eftir Dell 2950 netþjóni eða sambærilegu. vinsamlegast sendi upplýsingar á ...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...