Baðst afsökunar fyrir 12 árum
„Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. „Þetta er tólf ára gamalt mál og ég bar fram afsökunarbeiðni fyrir tólf árum.“
Fréttablaðið birtir afsökunarbréf Jóns Baldvins í dag og segist hann hafa litlu við það að bæta. „Ef ég myndi senda frá mér einhverja yfirlýsingu, þá yrði hún líklega rangtúlkuð,“ segir hann.
Tvisvar vísað frá
„Það er búið að kæra málið tvisvar, lögreglan rannsakaði það og því var vísað frá á þeirri forsendu að þetta væri tilefnislaus kæra,“ segir Jón Baldvin. „Ég var yfirheyrður mjög rækilega og niðurstaðan varð sú sama; það var ekki tilefni.“
Í einu bréfanna skrifar Jón Baldvin um samskipti sín við vændiskonur í opinberri ferð sinni til Tallinn í Eistlandi árið 2001.
Spurður hvort hann geti útskýrt það frekar segist hann ekki vilja það. „Nei, ég vísa til þess að þetta er eitt af því sem var framlagt í málinu og hefur fengið sína umfjöllun,“ segir hann. Hann vildi ekki svara spurningu um hvort það hefði verið til siðs hjá honum að umgangast vændiskonur í slíkum ferðum.
Bréfin ekkert leyndarmál
Hann segir bréfin aldrei hafa farið leynt og aldrei neina tilraun hafa verið gerða til að leyna tilvist þeirra. „Þessi bréf hafa verið fjölfölduð og þeim dreift til fjölda fólks,“ segir Jón Baldvin og segir að hann og nánasta fjölskylda hans hafi meðal annars komið þeim á framfæri við fjölskyldumeðlimi til að skýra sitt sjónarhorn í þessu sambandi. „Við höfum leitað til aðila innan fjölskyldunnar til að ganga í milli og höfum látið þau fá þessi bréf.“
Hann segist hafa orðið fyrir því að fólk úr ýmsum áttum hafi komið til sín við hin ýmsu tækifæri og sagst hafa lesið bréfin.
Jón Baldvin segist ekki hafa haft veður af umfjöllun Nýs lífs fyrr en blaðamaður hringdi í hann í gær til að leita viðbragða.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Málið var kært, en fellt niður
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Segir rangt farið með málsatvik
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Bað hana að leyna bréfunum
- Föstudagur, 16. mars 2012, Innlent „Ég stend við hvert orð“
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri





































