Forsetinn ræðir við ritstjóra Economist

Vel fór á með þeim Ólafi Ragnari og John Micklethwait, ritstjóra Economist, á ráðstefnunni í ... stækka

Vel fór á með þeim Ólafi Ragnari og John Micklethwait, ritstjóra Economist, á ráðstefnunni í Singapúr. Ljósmynd/Forsetavefurinn, forseti.is

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sat í dag fyrir svörum hjá John Micklethwait, ritstjóra The Economist, eins áhrifamesta fréttatímarits heims, á ráðstefnu um höfin sem tímaritið efndi til í Singapúr.

Heimsþingið sækja um 200 sérfræðingar í haffræði og sjávarútvegi, forystufólk alþjóðastofnana og alþjóðasamtaka, stjórnendur fyrirtækja og rannsóknarstofnana. Þátttakendur eru einkum frá Evrópu, Asíu og Ameríku.

Líkt og rakið er í tilkynningu á forsetavefnum var Ólafur Ragnar með setningarræðu á fyrri degi þingsins en á morgun, föstudag, verður bankastjóri Alþjóðabankans, Robert Zoellick, aðalræðumaður á síðara degi heimsþingsins. En Alþjóðabankinn sinnir aðallega hagsæld og efnahagslífi í þróunarlöndum.

Vísar til íslensks sjávarútvegs

Á forsetavefnum segir að forsetinn hafi vakið máls á þeim möguleika að Íslendingar leggi sitt á vogarskálarnar til þróunar nýs alþjóðakerfis í sjávarútvegsmálum, þar sem sjálfbærni fiskveiða er í brennidepli.

„Í ræðu sinni fjallaði forseti um nauðsyn þess að efla rannsóknir á höfunum og auðlindum þeirra, rakti reynslu Íslendinga og skipulagningu veiða á grundvelli vísindalegra rannsókna. Einnig fjallaði hann um þróun samstarfs á Norðurslóðum og hvernig íslenskur sjávarútvegur hefur verið frjór jarðvegur fyrir tæknifyrirtæki á ýmsum sviðum. Framfarir í upplýsingatækni hefðu nú gert kleift að starfrækja víðtækt eftirlit með veiðum og vinnslu og styrkja þannig sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda.

Lýsti forseti hugmyndum um nýtt alþjóðakerfi á þessu sviði sem byggt gæti á reynslu Íslendinga við nýtingu upplýsingatækni í sjávarútvegi. Á heimsþinginu verða margar málstofur sem m.a. fjalla um rannsóknir á höfunum, þróun sjálfbærs og arðbærs sjávarútvegs, alþjóðasamvinnu og valdsvið einstakra ríkja, reynsluna af Hafréttarsáttmálanum og þörfina á nýjum samningum um fiskistofna utan lögsögu ríkja, framtíð Norðurslóða og heimskautasvæða sem og áhrif loftslagsbreytinga á höfin.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bókhaldsstofan ehf, Reykjavíkurv.60 Hfj.
Bókhald, launaútreikn., vsk-uppgjör, stofnun á félögum, ársreikningar, skattfram...
Akureyri - Glæsileg íbúðagisting
Rúmgóð og vel útbúin íbúðagisting. Uppábúin rúm, handklæði, nettenging og lokaþr...
Hermannaúlpa
Hermannaúlpa til sölu, 2 stk. L- XL. Upplýsingar í síma: 8935005...
TÖKUM GARÐINN Í GEGN!KLIPPINGAR, TRJÁFEL
Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hre...
 
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...