Leitar hjálpar vegna Aratúnsmálsins
„Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli í héraðsdómi vegna bloggfærslu um sk. Aratúnsmál. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð.
Mál Andrésar var það fyrsta í röð meiðyrðamála sem höfðuð voru í kjölfar umfjöllunar um nágrannadeilur í Aratúni í Garðabæ. Andrés var sá fyrsti sem fjallaði um málið, á bloggsíðu sinni, þar sem hann birti 19. júlí 2010 færslu undir fyrirsögninni „Siðblint ofbeldisfólk og ráðalaus lögregla“. Lýsti hann þar ofbeldi sem vinafólk hans hafði sætt af hálfu nágranna sinna í Aratúni. Í kjölfarið tóku fjölmiðlar málið upp.
Heftir umræðu á vefnum
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í nóvemberlok ummæli af bloggsíðunni og facebooksíðu Andrésar dauð og ómerk og var Andrés dæmdur til að greiða 300.000 kr. í bætur auk málskostnaðar, alls 650.000 kr. Andrés segist ekki geta sætt sig við þessar málalyktir. „Þetta er alveg skelfileg niðurstaða, ekki bara fyrir mig heldur í rauninni alla sem vilja tjá sig á netinu.“
Andrés telur að fái dómurinn að standa setji hann fordæmi sem verði til þess að hefta mjög og takmarka alla umræðu á vefnum. Nánast ómögulegt verði að tjá skoðanir á umdeildum málefnum án þess að eiga á hættu að verða dæmdur til að greiða háar skaðabætur.
Mun endurgreiða aðstoðina
Hann segist ætla að fara með málið alla leið, en málareksturinn verði honum dýr og muni í heild hlaupa á tveimur milljónum hið minnsta. „Það stefnir allt í að ég áfrýi núna fyrir mánaðamót. En þetta er orðið mjög dýrt og þess vegna sækist ég eftir stuðningi til að standa straum af kostnaði. Ég tek það samt fram að ég er ekki að safna til að greiða fólkinu miskabætur. Það sem safnast verður eingöngu notað til að greiða lögfræðikostnað.“
Andrés segist munu endurgreiða alla aðstoð svo og það sem kann að safnast umfram þörfina gangi allt að óskum. Hann segist ekki munu gefast upp fyrr en í fulla hnefana. „Og þá meina ég það að sjálfsögðu táknrænt.“
Andrés hefur opnað sérstakan reikning vegna þessarar söfnunar.
Reikningsnúmerið er 0513-14-403842 og kennitala 180883-4019






































