Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar skrifuðu undir samning um Atvinnutorg í Hafnarfirði.
Í hádeginu í dag skrifuðu þeir Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar undir samning um Atvinnutorg í Hafnarfirði.
Atvinnutorg er nýtt samstarfsverkefni Hafnarfjarðarbæjar, Vinnumálastofnunar og Velferðarráðuneytis sem ætlað er að veita atvinnuleitandi og vinnufærum ungmennum, einstaklingsmiðaða, atvinnutengda ráðgjöf og stuðning til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Markmiðið er að vinna með ungu fólki, yngra en 25 ára sem hvorki er í námi né vinnu og aðstoða það við að finna vinnu eða komast í starfsþjálfun. Áhersla verður í upphafi lögð á starfsþjálfun ungmenna sem þiggja framfærslustyrk hjá Hafnarfjarðarbæ en einnig á verkefnið að vera ætlað ungmennum 16-18 ára sem eiga engan bótarétt auk þeirra ungmenna sem lengi hafa verið á atvinnuleysisbótum og eru að missa bótarétt sinn eftir að hafa verið í fjögur ár án atvinnu, segir í fréttatilkynningu frá Hafnarfirði.
Nokkrar stofnanir bæjarins hafa nú þegar lýst yfir jákvæðum vilja sínum til að taka þátt og fá ungmenni í starfsþjálfun. Boðið verður upp á 50% starf í hálft ár og greiðir Hafnarfjarðarbær laun fyrir viðkomandi ungmenni.
Á vinnutímabilinu verður þátttakendum boðið upp á fræðslu um atvinnuþátttöku og fleira sem nýtist þeim í starfi.
Fjölskylduþjónustan, Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar, Miðstöð símenntunar og Vinnuskóli Hafnarfjarðar hafa komið að undirbúningi verkefnisins og munu þessar stofnanir allar taka þátt í að tryggja að ungmennunum farnist vel og þau öðlist jákvæða starfsreynslu sem nýtist þeim til framdráttar hvort sem er í í atvinnuleit eða afturhvarfi til náms.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. mars 2012, Innlent Ungt fólk á atvinnutorgi í Kópavogi
- Föstudagur, 17. febrúar 2012, Innlent Opnuðu atvinnutorg
- Mánudagur, 13. febrúar 2012, Innlent Atvinnutorg opnað
- Laugardagur, 17. mars 2012, Innlent Vill hóflega fjárfestingu
- Fimmtudagur, 1. mars 2012, Innlent Átakinu Mottumars ýtt úr vör
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































