Reglur ræddar í Hafnarfirði
Verði drögin samþykkt orðrétt er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög fá ekki að stunda starfsemi sína innan veggja leik- og grunnskóla bæjarins á skólatíma. mbl.is
Drög að reglum um samskipti leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarfélög voru lögð fyrir fræðsluráð Hafnarfjarðar fyrr í vikunni. Drögin eru samljóma reglum sem samþykktar voru í Reykjavík, og segir í þeim að trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana eigi ekki heima í skólum Hafnarfjarðar.
Í greinargerð með reglunum segir, að það eigi að vera á hendi foreldra að ala börn sín upp í þeirri trúar- og lífsskoðun sem þeir kjósa. „Um það munu starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar standa vörð samkvæmt Jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar og þeim mannréttindasáttmálum sem Ísland hefur undirgengist.“
Taka ber fram að reglurnar kunna að breytast í meðförum fræðslunefndar og síðar bæjarráðs Hafnarfjarðar. Verði drögin samþykkt orðrétt er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög fá ekki að stunda starfsemi sína innan veggja leik- og grunnskóla bæjarins á skólatíma. „Þetta á við um allar heimsóknir í trúarlegum tilgangi og dreifingu á boðandi efni.“ Tekið er fram að með boðandi efni sé meðal annars átt við tákngripi og fjölfölduð trúarrit.
Þá segir að þess verði gætt við allar heimsóknir til og frá grunnskóla vegna fræðslu um trú og lífsskoðanir, að nemendur fylgist með en séu ekki ætlaðir þátttakendur í helgisiðum eða athöfnum.
Í greinargerðinni með reglunum segir að til grundvallar þeim liggi sá vilji, að tryggja rétt barna til þátttöku í skólastarfi óháð þeirri trúar- og lífsskoðun sem þau alast upp við.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, formaður fræðsluráðs bæjarins, sagði í samtali við Morgunblaðið í síðustu viku, að málið hafi verið tekið upp í Hafnarfirði þegar reglurnar komu til umræðu í Reykjavík. „Þetta er mál sem er nauðsynlegt að skoða. Við fáum þó nokkuð af ábendingum frá foreldrum sem finnst óþægilegt að það sé ekki skýr umgjörð utan um aðkomu trú- og lífsskoðunarfélaga að skólastarfi,“ sagði Guðrún.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 4. október 2011, Innlent Banna trúboð í skólum
- Fimmtudagur, 16. febrúar 2012, Innlent Í fótspor Reykvíkinga
- Fimmtudagur, 6. október 2011, Innlent Trúin í skammarkrókinn?
- Föstudagur, 4. nóvember 2011, Innlent Reglur borgarinnar verði endurskoðaðar
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent Með sama sniði og fyrr
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































