Rútan valt þrjá hringi
Samspil hálku og hvassviðris varð til þess að rúta með átta manns innanborðs valt út af veginum við Oddsskarðsgöng í kvöld. Að sögn Jónasar Wilhelmssonar, yfirlögregluþjóns á Eskifirði, fór rútan eina þrjá hringi og má þakka fyrir að bíllinn var vel búinn og menn í öryggisbeltum.
Rútan fauk út af þar sem kallað er Sandskeið, um kílómetra ofan við Eskifjörð, á stað þar sem gjarnan eru miklar hviður að sögn Jónasar. „Hún veltur svona niður vegaröxl. Ég gat nú ekki gert neinar mælingar á því hvað hún fór langt, það var kolvitlaust veður, en hún fer þrjár veltur að minnsta kosti,“ segir Jónas.
Því er ljóst að þakka má fyrir að farþegar sluppu allir með minniháttar meiðsl. Þeir voru sendir á heilsugæsluna á Eskifirði til eftirlits en einn fluttur á sjúkrahúsið á Norðfirði til öryggis. Jónas segir það hafa skipt miklu máli að rútan, sem var frá Austfjarðaleið, hafi verið vel búin og farþegar í bílbeltum.
Veðrið er nú dottið niður að sögn Jónasar og vegurinn um Oddsskarð hefur verið opnaður að nýju, en rútan bíður utan vegar í nótt. „Við bíðum bara þangað til í fyrramálið, þá getum við athafnað okkur í birtu og séð þetta almennilega,“ segir Jónas.
Mennirnir í rútunni voru á leið á vakt í álverinu á Reyðarfirði. Samkvæmt upplýsingum mbl.is var unnt að kalla inn bakvakt svo starfsemin yrði ekki fyrir röskun.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 7. mars 2012, Innlent Skólarúta fauk út af
- Miðvikudagur, 18. apríl 2012, Innlent Skólarúta fór út af veginum
- Mánudagur, 11. júlí 2011, Innlent Umferðarslys í Ljósavatnsskarði
- Þriðjudagur, 5. júlí 2011, Innlent Harður árekstur í Reykjadal
- Föstudagur, 19. ágúst 2011, Innlent Rútuslys í Fnjóskadal
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































