Telja neytendur eiga betri rétt
Hagsmunasamtök heimilanna (HH) áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm og hvernig beri að meðhöndla gengistryggð lán og áður gengistryggð lán á grundvelli hans. HH halda því fram að mögulega eigi neytendur betri rétt en þann sem kemur fram í þeim dómum sem fallnir eru ef litið er til laga um neytendalán og Evróputilskipana.
Á fundinum lögðu samtökin áherslu á að rétt væri að stöðva allar aðfarir og öll innheimta yrði fryst eða til þess mælst að fólk „deboneri“ greiðslum, eða þær settar í einhvern lágmarksfarveg í þeim tilfellum þar sem augljóst er að fólk skuldar ennþá stórar fjárhæðir, en ekki ríkir óvissa um hvort bankinn sé í vanskilum við lántakendur.
„Ólíklegt gæti talist að lántakendur teldust í vanskilum við lánveitanda sem gert hefði ólöglegan samning og síðan sent þeim ólöglega endurútreikninga sem óeðlilegt væri að ætlast til að standa skil á miðað við algjörlega brostnar forsendur. Þá lögðu fulltrúar samtakanna til að dómsmál til að leysa úr fleiri ágreiningsefnum fengju flýtimeðferðir innan kerfisins og í þeim þyrfti ráðgefandi álits EFTA dómstólsins. Þótt gerðardómur komi nú til greina af hálfu fjármálafyrirtækja og hafi verið lagður til af hálfu Talsmanns neytenda, þá telja samtökin alls ekki hægt að skuldbinda neytendur endanlega með gerðardómi ef þeir telja sig eiga betri rétt, slíkur dómur myndi eingöngu ná til þeirra sem samþykktu að gangast undir hann,“ segir í tilkynningu Hagsmunasamtakanna.
Samtökin viðruðu hugmyndir sínar um eignarnám lánasafna og að ríkið þyrfti ekki síður að óttast skaðabótaskyldu gagnvart neytendum heldur en fjármálafyrirtækjum. Var í því samhengi bent á að sé neytanda veittur ýtrasti réttur í vafaatriðum þá sé ekki um neina skaðabótaskyldu að ræða því það sé einfaldlega lögum samkvæmt. Varla getur það verið tjón að fylgja lögum, segir í tilkynningu samtakanna.
Þá vildu samtökin að þingmenn tryggðu sjálfvirka endurupptöku mála - án þess að fólk þyrfti að sækja sér þann rétt sérstaklega og að skila þyrfti eignum til fólks og síðan tryggja skaðabætur fyrir þá sem hafa nú þegar misst eignir sínar.
Að lokum lögðu samtökin til að SFF, Samtök fjármálafyrirtækja, yrði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang, segir í tilkynningu.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Þriðjudagur, 13. mars 2012, Innlent Segja úrskurðinn áfangasigur fyrir neytendur
- Fimmtudagur, 1. mars 2012, Innlent Hætt verði að senda út greiðsluseðla
- Föstudagur, 17. febrúar 2012, Innlent Dómurinn áfangasigur
- Þriðjudagur, 17. apríl 2012, Innlent Neytendur eiga betri rétt að sækja
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































