Virðingarleysi við vinnu allra
„Lögum samkvæmt getur ákærandi afturkallað ákæru allt þar til dómur fellur. Það er dálítið sérkennileg staða og talsvert virðingarleysi við vinnu allra ef það yrði gert alveg á hinsta degi. Ég vona að það fari að komast botn í þetta, að minnsta kosti áður en aðalmeðferðin hefst.“
Þetta segir Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, í Morgunblaðinu í dag um þingsályktunartillögu um afturköllun ákærunnar á hendur Geir H. Haarde sem er nú til afgreiðslu í þingnefnd.
Aðalmeðferð í landsdómsmálinu á að hefjast í Þjóðmenningarhúsinu mánudaginn 5. mars nk. Sigríður segir þá dagsetningu standa og stefnt sé að því að klára málið á tveimur vikum. Reiknað er með að vitnaleiðslum verði lokið 13. mars. Vitni í málinu eru yfir fimmtíu talsins og er nú unnið að því að boða þau fyrir dóminn.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis er með þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákærunnar til meðferðar. Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, er formaður nefndarinnar og segist hún ekkert geta sagt um hvenær málið verður afgreitt úr henni. „Við erum enn að skoða málið.“
Bloggað um fréttina
-
Sleggjan og Hvellurinn Afturköllun ákæru má sofna í nefnd eins og meirihluti allra ... -
S i g u r ð u r Sigurðarson Valgerður Bjarnadóttir- stundar klækjapólitík -
Marteinn Sigurþór Arilíusson virðing Steingríms
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. desember 2011, Innlent Augljóst að falla skuli frá málssókn
- Miðvikudagur, 29. febrúar 2012, Innlent Sama tillagan og var felld í janúar
- Þriðjudagur, 28. febrúar 2012, Innlent Afstaða þings í máli Geirs sé skýr
- Laugardagur, 17. desember 2011, Innlent Geta fellt niður ákæruna
- Mánudagur, 3. október 2011, Innlent Breytir engu um málsmeðferðina
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri





































