Börn í sérstakri drukknunarhættu

Frá Vatnaveröld í Reykjanesbæ. stækka

Frá Vatnaveröld í Reykjanesbæ. Mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Á undanförnum 20 árum má rekja 8 drukknanir og nærdrukknanir barna til þess að aðstandandi missti sjónar á þeim eitt andartak í sundlaug, líkt og gerðist í gær. Forstöðumaður Forvarnarhúss segir ástæðu fyrir því að reglur voru settar um að einn fullorðinn eigi ekki að hafa fleiri en tvö börn með sér í sund.

Snarræði 10 ára gamallar stúlku má þakka að ekki fór verr í gær þegar barn á fyrsta ári varð viðskila við föður sinn í Vatnaveröld í Reykjanesbæ og fór ofan í laugina. Herdís L. Storgaard, forstöðumaður Forvarnarhúss, segir að hlutirnir geti gerst mjög hratt við svona aðstæður.

Viðbrögð barna öðruvísi

„Það sem fólk kannski áttar sig ekki á er að börn undir fjögurra ára aldri eru í alveg sérstakri drukknunarhættu, vegna þess að viðbrögðin í kokinu á þeim eru mjög sterk. Það er til að varna því að þau kafni, en það sem gerist ef þeim svelgist á er að það getur lokast hastarlega fyrir öndunarveginn á þeim. Ef þau ná ekki að hósta þá getur það tekið 1 og ½ mínútu fyrir barnið að missa meðvitund, það gerist mjög snöggt.“

Þessi sterku viðbrögð líkamans, sem geta varað hjá börnum allt til 10 ára aldurs, eru m.a. það sem gerir það að verkum að við drukknun finnast þau oft fljótandi í sundlaugum, en ekki liggjandi á botninum eins og fullorðnir. „Þetta er kölluð þurrdrukknun, því þau gleypa ekkert vatn. Það lokast fyrir öndunarveginn og barnið missir fyrst meðvitund en fer svo í hjarta- og öndunarstopp.“

Eftirlitið ekki nægilegt?

Flestar sundlaugar landsins eru fjölsóttar af fólki með börn. Samkvæmt reglugerð sem tók gildi í upphafi árs 2011 verða börn yngri en 10 ára að vera í fylgd með fullorðnum, syndum einstaklingi, og er viðkomandi ekki leyfilegt að hafa fleiri en tvö börn með sér, nema um sé að ræða foreldri.

„Sumir hafa hnussað yfir því hvers konar forræðishyggja þetta sé, en það er alveg ástæða fyrir þessu,“ segir Herdís. Hún segir líka umhugsunarefni hvort gloppa sé í öryggisgæslu við sundlaugar. „Það er dálítið merkilegt að þegar svona gerist eru það yfirleitt sundlaugargestir sem finna þann sem er í vanda. Það eru mjög mörg dæmi um það og maður spyr sig af hverju þetta er svona. Það eru gerðar kröfur um mjög strangt eftirlit með sundlaugargestum, en það virðist ekki skila sér.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lögreglan við eftirlit.

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »
Kirkjugestir voru teknir til altaris.

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

Í gær, 17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Í gær, 16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
Í gær, 15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
Í gær, 14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
Í gær, 13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
Í gær, 14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er um að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
Í gær, 14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

Í gær, 12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Ducati sport classic 1000
Til sölu Ducati sport classic, árg. 2006 ekið 2500 km. Tveggja cyl. loftkælt. V...
Gasgrill
Til sölu gasgrill með hitaplötu. Tilboð. Uppl. í síma 863-7512...
Freon - Kælimiðlar - 15 ára reynsla
Eigum allar helstu gerðir af kælimiðlum á lager. Beinn innflutningur frá sama fr...
 
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...