Fær bætur vegna slyss
Hæstiréttur hefur viðurkennt bótarétt konu úr hendi Vátryggingafélags Íslands vegna slyss sem hún varð fyrir í vinnuferð á Spáni í júní 2008. Konan var að stökkva yfir lítið fráleggsborð þegar hún missti jafnvægið.
Með dóminum er snúið við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í apríl í fyrravor. Taldi héraðsdómur engar vísbendingar um að konan hefði fallið eða hrasað vegna utanaðkomandi atburðar, og yrði því að líta þannig á að svo hefði ekki verið.
Af þeim sökum falli slysið ekki undir 8. gr. vátryggingaskilmála en þar segir að með hugtakinu slys sé átt við skyndilegan utanaðkomandi atburð sem valdi meiðslum á líkama þess sem vátryggður er og gerist án vilja hans.
Aðdragandi slyssins var að konan tók þátt í skemmtiskokki en því lauk með að hlaupinn var hringur í kringum sundlaugina á hótelinu þar sem hún bjó á meðan dvölinni á Spáni stóð. Í hlaupinu kringum sundlaugina tók konan þá ákvörðun að stökkva yfir lítið fráleggsborð á sundlaugarbakkanum, en í stökkinu missti hún jafnvægið og féll við.
Samkvæmt vottorði bæklunarskurðlæknis rifnaði við slysið fremra krossband í hnénu, auk þess sem brjósk skemmdist töluvert í því innanverðu.
Hæstiréttur sagði tryggingafélagið ekki hafa byggt á því að fall konunnar mætti rekja til svima, eða öðru leyti til sjúkdóma eða annars innra ástands í líkama hennar. Var því fallist á að líkamstjónið hefði hlotist af skyndilegum utanaðkomandi atburði.
Innlent »
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 9. febrúar 2011, Innlent Bætur vegna áreitni yfirmanns
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Drengurinn flytur til Eyja
- Fimmtudagur, 27. janúar 2011, Innlent Landspítali greiði hjúkrunarfræðingi bætur
- Fimmtudagur, 19. maí 2011, Innlent Kastaði glasi í höfuð lögreglumanns
- Föstudagur, 9. mars 2012, Innlent Bætur fyrir varðhald og farbann
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú

































