Kaupa bensín fyrir 500 þúsund á ári

Verð á eldsneyti hefur hækkað mikið á síðustu vikum. stækka

Verð á eldsneyti hefur hækkað mikið á síðustu vikum. mbl.is/Friðrik Tryggvason

Eldsneytisreikningur heimilanna vegna eins fjölskyldubíls hefur á þremur árum farið úr 289 þúsund krónum á ári í 494 þúsund krónur. Þetta er hækkun um 205 þúsund krónur.

Þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpi sem sjálfstæðismenn hafa lagt fram á Alþingi um tímabundna lækkun eldsneytisverðs. Frumvarpið gerir ráð fyrir að á tímabilinu 1. apríl 2012 til 31. desember 2012 lækki fjárhæð olíugjalds úr 54,88 kr. í 19,88 kr.

Samkvæmt útreikningum FÍB í febrúar 2009 nam eldsneytisreikningur heimilanna vegna fjölskyldubílsins um 289 þús. kr. Þar af voru skattar 153 þús. kr. Sambærilegir útreikningar fyrir febrúar 2012 eru 494 þús. kr. og þar af eru skattar 239 þús. kr. Ráðstöfunartekjur meðalheimilis, og þar með neysla, minnka því um 205 þús. kr. vegna hærra eldsneytisverðs. Auk þessa hækkar vöruverð vegna aukins flutningskostnaðar.

Flutningsmenn benda á að lækkun skatta á eldsneyti leiðir beint til hækkunar ráðstöfunartekna, einkaneyslu og hagvaxtar. „Lækkun skatta á eldsneyti leiðir líka beint til lækkunar vísitölu neysluverðs sem aftur lækkar höfuðstól verðtryggðra lána heimila og fyrirtækja og afborganir af þeim.

Áhrif aðgerðarinnar, bein og óbein, væru veruleg og mundu leiða til jákvæðra áhrifa á hagvöxt. Framundan er mesti álagstími ferðaiðnaðarins og lækkun eldsneytis mundi virka eins og vítamínsprauta á greinina, hafa jákvæð áhrif á landsbyggðina sem og landið allt og styrkja innviði greinarinnar. Áhrifin mundu einnig leiða til lækkunar á flutningskostnaði og t.d. leiða til lækkunar vöruverðs,“ segir í greinargerð frumvarpsins.

Í febrúar 2008 fóru 5,01% af útgjöldum heimilanna í kaup á bensíni og olíum. Nú fara hins vegar 6,1% af útgjöldunum í þennan lið. Í febrúar 2008 fóru 12,41% af útgjöldum heimilanna í að kaupa mat og drykkjarvörur. Þetta hlutfall er núna komið í 14,68%.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lögreglan við eftirlit.

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »
Kirkjugestir voru teknir til altaris.

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

Í gær, 17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Í gær, 16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
Í gær, 15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
Í gær, 14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
Í gær, 13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
Í gær, 14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er um að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
Í gær, 14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

Í gær, 12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
chuahua til sölu
ég er með tvo chuahua hunda til sölu tík og rakka þeir eru mjög ljúfir og góðir ...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
Turbie Twist höfuðhandklæði - sniðug gjöf !
Handklæðin eru rakadræg og haldast á höfðinu. Hentar fyrir börn og fullorðna. Þe...
Peougut 406. Sjálfskiptur, nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Peougut 406 árg. 1997, ekinn 169 þúsund km. Bíllinn er sjálfskiptur og ...
 
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...